30.1.2008 | 09:06
Global vs. Local = Glocalismi
Hnattvæðing er það orð sem að einna mest fer fyrir í umræðunni í dag. Í augum margra er hnattvæðingin slæm, stuðlar að einsleitni þjóða og hefur orsakað bil milli þeirra sem ríkir eru og þeirra sem fátækir eru. Hnattvæðingin hefur þann blæ á sér að vesturveldin séu að sölsa undir sig heiminn smátt og smátt, efnahagslega sem og menningarlega.
Það er morgunljóst að á undanförnum árum hefur átt sér stað gríðarleg samfélagsbreyting hjá stórum hluta mannkyns. Tæknilegar framfarir hafa gert það að verkum að samfélagið ferðast um á ljóshraða, atburðir í Asíu eru komnar í fréttirnar í Evrópu á örskotsstundu. Ferðalög hafa aldrei verið auðveldari og sífellt eru samfélög að verða fjölmenningarlegri og um leið er sagt að heimurinn sé að minnka, fjarlægðirnar séu að verða að engu.
Ég vil lesa meira um hnattvæðingu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2008 | 11:09
Fíflalæti í Reykjavík
Það hafa komið fram ýmsar útlistanir á því hvað gerðist á bak við tjöldin þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Ólafur F. Magnússon mynduðu borgarstjórnarmeirihluta. Vefritið ætlar að reyna að forðast spurningarnar sem snúa að því hvað gerðist í bakherbergjum og beina ljósi af því sem eru aðalatriði í þessu máli öllu.
20.1.2008 | 18:13
Braskað með Barack og verðhækkanir á Hillary
Margir eru spenntir að vita hverjir verða frambjóðendur demókrata og repúblikana í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum. Margir fylgjast með fréttum og spekúlera. Aðrir rýna í kannanir. Valgerður B. Eggertsdóttir bendir á annað nokkuð sem getur gefið þeim forvitnustu nýjar og áhugverðar vísbendingar um hvernig þetta gæti allt farið. Í helgarumfjölluninni að þessu sinni segir m.a: En í Bandaríkjunum er gengið á frambjóðendunum hins vegar uppfært á 15 mínútna fresti. Settar hafa verið á fót vefsíður þar sem hægt er að kaupa bréf í Hillary og öðrum frambjóðendum sem keppa um útnefningu fyrir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Gengi þessara bréfa gefa síðan vísbendingu um hugsanleg úrslit forvalanna.
17.1.2008 | 11:25
Nýtt varnarmálafrumvarp
Fyrsta umræða um ný varnamálalög fer fram á Alþingi í dag. Eva Bjarnadóttir fjallar um fjögur markmið frumvarpsins og hvers vegna það er mikilvægt framfaraskref: Í fyrsta sinn er lögð fram heildstæð löggjöf um varnarmál en hingað til hefur verið byggt á lausreipuðum lögum um veru Bandaríkjahers í landinu, sem fela ekki í sér neina aðkomu íslenska ríkisins. Frumvarpið tryggir því lýðræðislega meðferð öryggis- og varnarmála.
Lesa meira um öryggi- og varnir Íslands
16.1.2008 | 17:46
Mannaráðningar og sjálfstæði dómstóla
Þorsteinn Davíðsson var nýverið skipaður í embætti héraðsdómara Norðurlands. Sú ráðning hefur ollið miklu fjaðrafoki enda var Þorsteinn aðeins talinn hæfur í embættið á meðan enginn umsækjenda var talinn vel hæfur en þrír umsækjendur þóttu mjög hæfir. Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, skipaði svo Þorstein í embættið, þvert á vilja nefndarinnar sem vildi sjá einhvern af þessum mjög hæfu gegna embættinu.
Vil lesa meira um Árna Mathiesen og sjálfstæði dómstóla
13.1.2008 | 15:25
Fólk án húsnæðis
Það virðist erfitt að fá velferðarkerfið til þess að ná utan um þjónustu við heimilislausa. Málefni þeirra er enn einn málaflokkurinn sem ríki og sveitafélög henda sín á milli og leysa með því að treysta á frjáls félagasamtök. Enginn veit raunar hversu margir eru heimilislausir. Þeir sem starfa dags daglega við umönnun heimilislausra segir fjöldann hlaupa á hundruðum. Þá er ekki aðeins rætt um þá sem sofa í hitakompum, neyðarskýlum og fangaklefum, heldur einnig þá sem fá að halla sér hjá ættingjum og kunningjum, gista á spítölum og geðsjúkrahúsum. Málaflokkurinn einkennist af algjörri ringulreið og skyndilausnum.
Lesa meira um fólk án húsnæðis á Íslandi...
10.1.2008 | 13:51
Hið nýja ofurmenni?
Eru hakkarar snillingar eða óprúttnir glæpamenn sem svífast einskis? Í grein dagsins fjallar Valgerður Halldórsdóttir um tölvuþrjóta heimsins sem margir hverjir geta brotist inn í tölvur, sjónvörp og jafnvel farsíma. Í erindi sínu sýnir Holman t.d. hvernig hann geti nýtt sér netkerfi hótels til að fá allar upplýsingar um aðra hótelgesti. Með því að tengjast sjónvarpsskjá á hótelherbergi sínu getur hann ekki einungis horft á bíómyndir hótelsins, sem greiða þarf gjald fyrir, fríar heldur getur hann einnig stjórnað hvað gestir á öðrum hótelherbergjum horfa á, skoðað tölvunotkun gesta og þar af leiðandi kortafærslur, bankanotkun o.s.frv.
Jahá! Ég meina, hver vill ekki lesa um hakkara?
9.1.2008 | 11:04
Og þá er það 2008
Í byrjun nýs árs fjallar Hrafn Stefánsson um vonir og væntingar hinna síkátu Íslendinga: Nærri helmingur þjóðarinnar telur að atvinnuleysi muni aukast og að efnahagsástand í landinu muni versna. Meirihluti landsmanna telur að verkföll muni aukast. Við fyrstu sýn kemur þetta nokkuð á óvart því Íslendingar eru almennt bjartsýn þjóð sem lifir eftir þeirri lífsspeki að hlutirnir reddist alltaf á endanum.
Lesa meira um vonir og væntingar árið 2008
Í grein dagsins fjallar Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir um húsnæði fyrir náttúrufræðistofnun Íslands og svokallað náttúruhús sem fyrirhugað var í Vatnsmýrinni lengi vel. Það var nefnilega árið 1989, á 100 ára afmæli Hins íslenska náttúrufræðifélags og Náttúrugripasafns Íslands sem Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands og menntamálaráðneyti f.h. ríkisins bundust samtökum um að nú loks skyldi reist hús fyrir Náttúrugripasafn. Yrði það gert á umræddri lóð á háskólasvæðinu og var deiliskipulagi í kjölfarið breytt og byggingarreitnum bætt og merktur á árituðum uppdrætti einungis ætlaður fyrir náttúrufræðisafn og tengda starfsemi Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Heldur betur. Ég vil lesa um Björgólf, Geirfugla og Náttúrugripasafn!
7.1.2008 | 10:24
Hvað bakaðir þú margar sortir vinan?
Eftir jólafrí snýr Vefritið aftur með grein Elínar Ósk Helgadóttur en hún fjallar um jól í fortíð og nútíð. Sú kona, sem elskar manninn sinn, leitast aldrei við að kasta skugga á húsbóndastöðu hans á heimilinu. Þvert á móti. Henni er ánægja að því að draga sig í hlje, ef kostir hans koma frekar í ljós við það. Jafnvel þótt hún sje meiri gáfum gædd en eiginmaður hennar, gætir hún þess af auðæfum elsku sinnar, að láta sem minnst á því bera. (Madama Tobba 1922, eftirleiðis MT).
Já, að sjálfsögðu vil ég forvitnast um kökubaksturinn hennar Elínar!
7.1.2008 | 10:22
Að heyra og hlusta um jólin
Í jólagreininni að þessu sinni veltir Grétar Halldór Gunnarsson því fyrir sér hvort við leyfum okkur þann munað að hlusta á frásöguna sem endurtekin er um sama leyti á hverju á ári. Í framhaldi skorar hann á alla til að hlusta með eftirtekt og spyrja sig hvaða flokk þeir vilji fylla. En það krjúpa ekki allir með kirkjunni líkt og það fylgdu ekki allir Jesú á sínum tíma. Heimurinn hataði Jesú og kenningu hans svo mikið að hann var hæddur með þyrnikórónu og aflífaður grimmilega.Samt sem áður héldu fylgjendur hans áfram að krjúpa fyrir honum og hafa síðan horft til næturinnar dimmu í Betlehem sem björtustu nótt allra tíma.
Auðvitað vil ég lesa meira um jólin!
7.1.2008 | 10:20
Samfélagsleg vandamál
Eva Bjarnadóttir fjallar um samfélagsleg vandamál í Íslandi í grein dagsins. Í greininni fjallar Eva um smæð Íslands og hversu sjálfsagt öruggt þak yfir höfuðið sé. Það er algjört forgangsverkefni að finna heimilislausum stað í velferðarkerfinu. Það þarf að skapa ólík úrræði fyrir ólíkt fólk og ólík félagsleg vandamál. Það þarf einnig að hlúa að forvarnarstarfi gegn heimilisofbeldi og áfengi- og vímuefnaneyslu. Ekki síst þarf að gera húsnæðismarkaðinn þannig úr garði að þeir allra fátækustu hafi efni á þaki yfir höfuðið.
19.12.2007 | 15:08
Fögnum fjölmenningu
Í grein dagsins fjallar New York búinn Snorri Sigurðsson um fjölmenningarsamfélagið vestra og ber það saman við Ísland, sem að hans mati mætti alveg vera aðeins fjölskrúðugra. Það þarf ekki nema að ganga um götur og hverfi New York borgar til að sjá hina ólíku menningarstrauma mætast. Veitingastaðir, verslanir, skólar, kirkjur, moskur og hof eiga uppruna sinn að rekja til innflytjenda. Sumir hóparnir hafa verið hér frá upphafi borgarinnar fyrir nokkrum öldum síðan. Aðrir hafa einungis haslað sér völl á nokkrum árum eða áratugum. Það sem er þó einna merkilegast og það sem New York er sjálfsagt þekktust fyrir er hversu auðveldlega hinir ólíku menningarheimar mætast, búa í sátt og samlyndi hlið við hlið og renna saman á nýstárlega máta.
Heldur betur! Ég vil lesa meira um fjölmenningu og Ísland!
17.12.2007 | 17:27
Gleði, gleði, gleði...
Á þessum góðviðrismánudegi þegar vika er til jóla, flytur Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir okkur jólaboðskap um það sem ber að gleðjast yfir þessi jól. Ljótar jólaskreytingar. Hér hljóta Íslendingar að eiga enn eitt metið. Margþættur tilgangur; t.d. lýsa þær óneitanlega upp skammdegið og tilveruna ef því er að skipta með sínu ótrúlega smekkleysi. Blikkseríu sem hefur verið kastað yfir tré, slönguseríu sem hefur verið vafin um allt sem fyrir er og stórir veifandi og glóandi plastjólasveinar standa uppúr í þessum flokki. Best þó sé öllu blandað saman - og passa uppá að blikkseríurnar blikki ekki í takt.
Lesa meira um ljótar jólaskreytingar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 19:03
Bali vegvísirinn
Í umfjöllun helgarinnar skoðar Pétur Ólafsson Balí vegvísinn svokallaða sem var samþykktur á aukafundi á loftslagsráðstefnunni á Balí í Indónesíu. Vegvísirinn þykir merkilegur sökum sinnnaskipta Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum. Vegvísirinn svokallaði á að tiltaka hversu mikið þjóðir heims myndu skuldbinda sig um minnkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Annars vegar iðnríki og hins vegar þróunarríki. Öll þróuðu ríkin sem nefnast G77 voru sammála um að iðnríkin myndu draga úr útblæstri koltvísýrings og að þau, auk Kína og Indlands myndu leggja meira af mörkum en þróunarlöndin til loftslagsbreytinga
Lesa meira um vegvísi í loftslagsmálum ...
15.12.2007 | 19:02
Er heilinn kynfæri?
Virka heilar karla og kvenna á svipaðan hátt eða er munur á kynjunum þegar kemur að heilastarfsemi? Gró Einarsdóttir fjallar um mannsheilann og færir rök fyrir ólíkri getu karla og kvenna í daglegu lífi. Fyrir um 100 árum hefði það þó ekki verið talið til tíðinda ef einhver hefði bent á að kynin hefðu ólíka hæfileika og getu. En í dag mundi slík fullyrðing líklegast vekja önnur viðbrögð. Á undanförnum áratugum hefur verið lögð mikil áhersla á jafnrétti karla og kvenna í vestrænum samfélögum.
13.12.2007 | 11:51
Er hægt að græða á barneignum?
Kári Hólmar Ragnarsson spyr lesendur vefritsins hvort mögulegt sé að græða á barneignum og hvort landslög hvetji stúdenta frekar en aðra til að eignast börn. Foreldri verður að ljúka þessu fulla námi, þ.e. standast próf og klára a.m.k. 11 einingar á önn. Segjum sem svo að barn námsmanns fæðist í júlí (sem reynslan sýnir að er ekki ómögulegt að gerist!). Þá er því ekki séns að falla í jólaprófi og ná síðan upptökuprófum í ágúst. Og það sem meira er; foreldri verður að hafa lokið fullu námi á bæði haust- og vorönn fyrir fæðingu.
Þú finnur það út hér hvort þú getir grætt á barnaeignum...
12.12.2007 | 17:26
Er umræðan um lyfjaverð og lyfjaverslun á villigötum?
Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um lyfjaverð og lyfsölu í stórmörkuðum undanfarið. Í grein dagsins skoðar Kristín Laufey Steinadóttir málið og setur stórt spurningamerki við stórmarkaðsvæðingu lyfja. Í apótekum veita lyfjafræðingar ráðgjöf um lyf sjúklinga og svara spurningum sem upp kunna að koma tengdum verkun lyfjanna, notkun þess og svo framvegis. Reynslan sýnir að sífellt fleiri leita slíkrar ráðgjafar eða svokallaðri lyfjafræðilegri umsjá. Það er hins vegar erfitt að sjá hvernig lyfjafræðileg umsjá rúmast í póstverslun eða á afgreiðslukössum stórmarkaða. Þar hefur sjúklingurinn ekki tök á að ræða við lyfjafræðing augliti til auglitis og því er möguleiki að hættan aukist á að lyfið sé ekki tekið rétt inn.
Já, þetta ætla ég heldur betur að lesa...
12.12.2007 | 17:24
Ertu búin/nn að gera allt fyrir jólin?
Í grein dagsins fjallar Fanney Dóra um undirbúning jólanna, aðventuna, jólagjafirnar og verslunaræði landans. Að mati Fanneyjar ætti fólk ekki að eyða tímanum í stress, heldur reyna að slaka meira á og jafnvel skera út laufabrauð. Margir fá hreinlega magapínu bara af því að hugsa um hvað á að gefa hverjum í jólagjöf, hvenær tími vinnist til að þrífa eldhússkápana og skipta um gardínur, hvernig skipuleggja eigi jólin og áramótin og þar fram eftir götunum. Vonandi fer þessi hópur fólks samt minnkandi, en mér finnst æ fleiri vera komnir í svipaðar hugleiðingar og ég hvað aðventuna varðar.
Auðvitað vil ég hafa það næs um jólin!
12.12.2007 | 17:21
Ungfrú jarðsprengja
Í grein dagsins segir Valgerður Halldórsdóttir okkur frá fegurðarsamkeppni í Angóla með öðru sniði en við eigum að venjast. Valgerður fylgist með keppendum Ungfrú jarðsprengja og spáir í spilin og veltir fyrir sér tilgangi og tilurð keppninnar. ,,Á heimasíðu keppninnar eru myndir af keppendum þar sem þær stilla sér upp líkt og keppendur í fegurðasamkeppnum á sundlaugarbakka eða ströndinni. Hver og ein er fulltrúi síns landshluta í Angóla. Íklæddar American Apparel kjólum, með kórónu og borða brosa þær feimnislega í myndavélina.
Já, ég vil að sjálfsögðu lesa um þetta.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006