Þetta er engin pólitík, tík

VigtinÍ grein dagsins fjallar Saga Garðarsdóttir um staðalímyndir og tvískinnunginn sem einkennir umræður um útlitsdýrkunina. Segir meðal annars: ,,Kannski er það út af því, að á eftir spjallþættinum þar sem talað var við sálfræðing og prófessor í kynjafræði um brenglaðar ímyndir stúlkna, er sýnd auglýsing fyrir Viking lite, þar sem afskaplega lítill og aulalegur víkingur er að príla upp á getnaðarlega gellu. Kannski er það útaf því að á undan og á eftir greininni ,,You go girl” í Cosmopolitian eru fótosjoppaðar myndir af þrettán ára stelpum undir kjörþyngd..."

Lesa meira...


Hugleiðingar um nýtt frumvarp um stjórnmálaflokka

AlþingishúsiðNýtt frumvarp um fjármál stjórnmálaflokkanna hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og hafa ákvæði þess talsvert verið gagnrýnd. Pétur Ólafsson skoðar frumvarpið í grein dagsins, en í henni segir meðal annars: „ Gagnrýni á frumvarpið hefur aðallega verið tvennskonar. Í fyrsta lagi hefur verið bent á að frumvarpið útiloki önnur stjórnmálasamtök í að bjóða fram, þar sem eingöngu flokkar sem sitji á þingi fái framlög. Í annan stað hefur frjálshyggjuvængurinn sagt að einhverskonar ófrelsi felist í því að banna fyrirtækjum og einstaklingum, sem vilja ekki láta nafns síns getið í bókhaldinu, að styrkja flokka.“

Lesa meira.


Fákeppni á Íslandi

MatarkarfanÍ grein dagsins fjallar Hrafn Stefánsson um fákeppni á Íslandi og hvernig er hægt að sporna við henni. Segir meðal annars í greininni: ,,Neytendur á Íslandi finna fyrir afleiðingum fákeppni og einokunar á hverjum degi. Matarkarfan kostar sitt, símafyrirtækin bjóða upp á sömu taxtana, bensíndropinn er alls staðar jafn dýr, það er ein áfengisverslun á hverja 6500 íbúa, dýrara er að fljúga innanlands en til Evrópu og svo mætti lengi telja.” Lesa meira...


Þú ert maður ársins

Forsíða TimeÍ grein dagsins fjallar Lára Jónasdóttir um óvenjulega tilnefningu Time Magazine á manni ársins 2006 og þá gríðarstóru félagslegu tilraun sem á sér stað á hverjum degi á öldum internetsins. Segir meðal annars í greininni: ,,Þegar fjallað er um Netið og kraftinn sem býr að baki er ekki verið fjalla um Netið sem hefur þróast með ógnarhraða frá dot com æðinu sem skók heiminn fyrir aldamót. Það er verið að tala um Web 2.0 sem er hugmynd um aukna gagnvirkni á vefnum og notendur stjórni og framkvæmi í auknu mæli. Þó er ekki talað um að á undan Web 2.0 hafi verið Web 1.0, heldur var þetta hugmynd að nafni sem sýndi fólki að færa eigi Netið á hærra plan."

Lesa meira...


Málstaður málleysingjanna

HúsdýrGrein dagsins er eftir Snorra Sigurðsson og fjallar um réttindi og velferð dýra hér á Íslandi í samanburði við það sem þekkist erlendis. Í greininni segir meðal annars: „Hverjum dettur ekki fyrst í hug hálfbrjálað fólk að kasta blóði á ofurfyrisætur klæddar loðfeldi eða menn í gúmmibát að elta hvalveiðiskip þegar orðið dýraverndunarsinni ber á góma? Þessi neikvæða mynd er erfiður baggi að bera fyrir öll þau samtök (flestöll erlendis) sem vinna af miklum heilindum og á friðsamlegan hátt við það að verja málstað lífvera sem búa í sambýli við okkur mennina og geta ekki varið sig.“ Lesa meira.


Betri er einn fugl í skógi en tveir í hendi

Karlar og konurPrófkjörum stærstu stjórnmálaflokkanna fyrir alþingiskosningarnar í vor lauk fyrir nokkrum vikum síðan. Menn voru misjafnlega sáttir með niðurstöðurnar eins og gengur og gerist, en áberandi var þó sú gagnrýni að konur báru skarðan hlut frá borði. Agnar Freyr Helgason rýnir í niðurstöðurnar í helgarumfjöllun Vefritsins og reynir að varpa ljósi á árangur kynjanna með ýmsum hætti. Kemur hann í kjölfarið með tillögu að baráttumáli fyrir alla þá sem láta sig jafnrétti kynjanna varða. Segir meðal annars í úttektinni: ,,Það þarf ekki að rýna lengi í myndina hér að ofan til að sjá að yfirburðir þingmannanna eru afgerandi – 21 öruggt þingsæti á móti 9. Það sem stingur enn frekar í augun er misskiptur árangur kvenna sem ekki gegna þingmennsku – einungis ein þeirra náði öruggu sæti hjá flokkunum tveim (Guðfinna S. Bjarnadóttir hjá Sjálfstæðisflokknum) en níu höfnuðu í baráttusæti.”

Lesa meira...


Af róbotisma

Fastir í róbótismaÍ grein dagsins fjalla Eva Bjarnadóttir og Styrmir Goðason um róbótisma í fyrirtækjum og í lífinu sjálfu. Meðal þess sem segir í greininni er: „Það má þó ekki gleyma því að, þótt það hjálpi samfélagi okkar að fyrirtæki að hagnist, þá þjóna þau öðrum mikilvægum, samfélagslegum tilgangi – þau eru vinnustaðurinn okkar og þau sjá okkur fyrir allri þjónustu sem við sækjum.“ Lesa meira...


Bölvaður bjórinn

BjórÍ grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um lögleiðingu bjórsins fyrir rúmum 17 árum síðan. Segir meðal annars í greininni: ,,Þegar frumvarpið varð loksins að lögum hafði t.a.m. breytingartillaga um að þjóðin ætti að eiga síðasta orðið felld með einungis einu atkvæði við afgreiðslu málsins hjá neðri deild þingsins. Mótbárur þingmanna (og fjölmargra samtaka og einstaklinga) voru margvíslegar eins og gefur að skilja, en meginstefið var þó það að taumlaus drykkja myndi fylgja í kjölfarið með tilheyrandi eymd og volæði." Lesa meira.


Réttindi og velferðarkerfi

vog.jpgÍ grein dagsins fjallar Hlynur Orri Stefánsson um eignaréttinn út frá kenningum heimspekingsins John Rawls um réttlátt samfélag. Segir meðal annars í greininni: ,,Mistök þess sem gagnrýnir félagshyggju fyrir að brjóta gegn eignaréttinum felst því í því að hann lítur á eignaréttinn sem eilíf og eðlislæg réttindi mannsins (náttúruleg réttindi), en ekki eitthvað sem felst í skipan réttláts samfélagsins og skapar væntingar hjá þeim sem við slíka skipan búa. Réttlát samfélagsskipan felst hins vegar í meiru en bara að vernda eignaréttinn.” Lesa meira.


Svipt frelsinu

FrelsiÍ grein dagsins fjallar Helga Tryggvadóttir um sigur nýfrjálshyggjuna í hugmyndakapphlaupi þjóðmálaumræðu undanfarinna ára. Nefnir hún Milton Friedman heitinn sérstaklega til sögunnar, en í greininni segir meðal annars: ,,Þegar aldarfjórðungssaga nýfrjálshyggjunnar er skoðuð sést að ekki er allt gull sem glóir. Stefán Ólafsson bendir á að þrátt fyrir ágætishagvöxt í Bandaríkjunum allt tímabilið hafi laun almennings yfirleitt ekki hækkað, jafnvel lækkað í sumum tilfelllum, þrátt fyrir að vinnudagurinn hafi lengst.”

Lesa meira...


Hvað á barnið að heita?

SkírninÍ grein dagsins fjallar Örlygur Hnefill Örlygsson um mannanafnanefnd og tillögur um afnám hennar. Segir Örlygur meðal annars í greininni: ,,Sjálfur heiti ég nafni sem er langt frá því að vera hefðbundið, og hef ég þó ekki séð að ég sé mjög skemmdur af því. Ég efast líka um að Curver Thoroddsen tónlistarmaður og fyrrum kennari minn yrði fyrir miklu aðkasti vegna þess nafns, en hann er meðal þeirra sem hafa fengið synjun um nafnabreytingu."

Lesa meira...


Af jaðrinum og inn á miðjuna

KvennalistinnNýlega flutti Kristín Jónsdóttir, sagnfræðingur, erindi byggt á mastersritgerð sinni þar sem áhrif Kvennaframboðsins og Kvennalistans á íslenskt samfélag eru skoðuð og metin. Valgerður B. Eggertsdóttir fékk Kristínu til að svara nokkrum spurningum um upphaf, ástæður og áhrif Kvennaframboðsins á Íslandi. Segir meðal annars í viðtalinu: ,,Alþingisframboð var mjög umdeilt innan Kvennaframboðs. Mörgum fannst ekki síður þörf á kynjasjónarmiðum á Alþingi og rétt að nýta byrinn til að storka því karlavígi. Aðeins þrjár konur sátu á þingi eða 5% þingmanna. Niðurstaðan var sú að Kvennaframboð mundi ekki standa að alþingisframboði en það hafnaði því ekki sem leið í baráttu fyrir bættri stöðu kvenna. Kvennalisti var því stofnaður í kjölfarið og bauð fram 1983.”

Lesa meira... 


Að eiga veg og vanda

SuðurlandsvegurÞað sem af er árinu 2006 hafa 27 manns látið lífið í umferðarslysum og fjöldi annarra beðið varanlegan skaða af. Ráðherrar og þingmenn telja að næsta rökrétta skref til að tryggja öryggi vegfarenda sé tvöföldun Suðurlands- og Vesturlandsvegar. Eyjólfur Þorkelsson veltir í grein dagsins upp hvort önnur verkefni séu ekki brýnni. „Eining er um að tryggja þurfi öryggi vegfarenda en það er sitthvað öryggi og munaður. Helsta ógnin við öryggi vegfarenda um Suðurlandsveg er glannaskapur annarra ökumanna og nálægð við umferð úr gagnstæðri átt. Það að aðskilja aksturstefnur er sannarleg samgöngubót meðan tvöföldun skilar litlu sem engu til viðbótar.“


Nöturleg sýn

RáðhúsiðÍ grein dagsins fjallar Valgerður B. Eggertsdóttir um fjáhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem kynnt var í vikunni. Segir m.a. í greininni: ,,Heldur nöturleg sýn blasir við þeim sem biðu eftir efndum. Í staðin fyrir að standa við stóru orðin og bæta þjónustu við aldraða hefur nýr meirihluti ákveðið að aldraðir skuli frekar borga meira fyrir þá þjónustu sem er til staðar." Lesa meira.


Rauð nef og hreint vatn

Borgarfulltrúar og borgarstjóri setja upp rauðu nefin.Dagur rauða nefsins á föstudaginn var, 1. desember, heppnaðist afar vel. 88 milljónir króna söfnuðust og nærri fjögur þúsund nýir heimsforeldrar voru skráðir. Grétar Halldór Gunnarsson skrifar í grein dagsins um hversu miklu svona átak getur skilað: „Það er frábært hvað samhent átak með þessum hætti getur gert mikið gagn. Sjálfur gekk ég Laugaveginn 1. desember síðastliðinn og sá þá fullan bíl af harðjöxlum keyra niður veginn með rúður niðurskrúfaðar, tónlistina í botni og rauð trúðanef. Skemmtilegt dæmi af vel heppnaðri söfnun.“ Lesa meira.


Nýi flatskjárinn í stofunni

Ég er...Hvernig á að bregðast við stórauknum neyslukröfum fólks í okkar heimshluta? Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir fjallar í grein dagsins um breytta neyslumenningu, meðal annars í ljósi greinar eftir félagsfræðinginn Juliet Schor: „Hún spyr hvernig stendur á því að þrátt fyrir að meðallaun í Bandaríkjunum fari stöðugt hækkandi eigi fólk ávallt erfitt með að ná endum saman. Að hluta má skýra þetta, segir hún, með því að neysla á Vesturlöndum á umliðnum árum hafi færst úr löngun í þægindi yfir í löngun í lúxus ...og mér varð hugsað til holdgervings lúxusneyslunnar, flatskjásins í stofunni heima.“ Lesa meira.


Sælla að gefa en þiggja

Jólaskrautið er dregið snemma fram í mörgum verslunum.Í grein dagsins fjallar Agnar Burgess um jólakaupæðið og hvernig stórverslanir á borð við IKEA og Blómaval reyna að lengja aðdraganda jóla ár hvert til mikilla muna. Segir m.a. í greininni: ,,Í haust tók ég eftir var grein í miðju Fréttablaðinu undir fyrirsögninni: „88 dagar til jóla“. Það er naumast, ekki seinna vænna en að kaupa inn. Þeir voru meira að segja á undan IKEA sem í mínum augum er Trölli sem stelur jólunum ár hvert með þjófstarti. Það er eitthvað að því að eyða rétt tæpum fjórðungi ársins í að undirbúa veislu sem fer fram árlega.” Lesa meira.


Pólitísk markaðssetning

e-mail_spam.jpgÍ grein dagsins fjallar Ingvi Snær Einarsson um kosningaáróður í gegnum síma, sms og tölvupóst og hvernig hann samræmist lögum um beina markaðssetningu. Segir meðal annars í greininni: ,,Það verður fróðlegt að sjá hver niðurstaða ofangreindrar kvörtunar verður, einkum og sér í lagi þegar haft er í huga að ekkert er til í lögum um pólitíska markaðssetningu. Í fjarskiptalögum er hins vegar ákvæði sem fjallar um beina markaðssetningu, þ.e. sölu eða kynningu á vöru eða þjónustu.” Lesa meira.


Vinstrið í Suður-Ameríku - Er nýfrjálshyggjan gjaldþrota?

Hugo ChavezUm helgina fara fram forsetakosningar í Venesúela, þar sem Hugo Chavez sækist eftir endurkjöri. Pétur Ólafsson fjallar í grein dagsins um ástæður þess að mörg lönd álfunnar kusu sér vinstristjórnir árin 2005 og 2006. „Ein helsta ástæða þess að vinstriöfl eru að ná völdum er líklega sú að íbúar Suður-Ameríku hafa mátt þola mikið óréttlæti á síðustu tuttugu árum. Í mjög einfaldri mynd eru helstu málefni vinstri flokkanna á svæðinu að minnka fátækt og bæta lífsskilyrði almennt, auka sjálfstæði efnahagsins, og draga úr rétttrúnaði á óheft alþjóðleg viðskipti.“ Lesa meira


« Fyrri síða

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband