Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
28.4.2007 | 11:11
Fjögur ár í viðbót?
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2007 | 09:38
Prestastefna - Það sem enginn sá
Í grein dagsins fjallar Grétar Halldór Gunnarsson um nýafstaðna prestastefnu á Húsavík. Hann greinir frá því sem enginn sá en gerðist samt. Í greininni segir m.a: Á prestastefnunni var hinsvegar líka hópur presta sem vildi ganga aðra leið en þá sem var farin. Prestarnir voru hluti af 40 manna hóp sem sendi frá sér aðra tillögu og lögðu fyrir prestastefnu. Þeir vildu ganga þann veg að gera hjónaband samkynhneigðra eins hjónaband og hjónaband karls og konu. Þeir voru ekki einir sem voru þeirrar skoðunar.
Hvað finnst prestum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2007 | 09:35
Kirkja og Kredda
Prestastefna hefur verið í fréttum undanfarið. Í grein dagsins fjallar Kári Hólmar Ragnarsson um hana gagnrýnir ýmislegt það sem honum finnst að kirkjunni og stöðu hennar í tengslum við ríkisvaldið. Í greininni segir m.a: Jafnrétti er þannig ein af grundvallarreglunum sem við byggjum samfélag okkar á. Það að réttlæta mismunandi stöðu fólks með kynhneigð er því í andstöðu við stjórnarskránna. Mér, sem verðandi lögspekingi, finnst umræðan eiginlega ekkert eiga að ná lengra en þetta.
27.4.2007 | 09:34
Af Bóbóum
Hvað eru Bóbóar? Í grein dagsins útlistar Bryndís Björgvinsdóttir hvað Bóbóar eru og lýsir í grundvallaratriðum. Um leið skorar hún á alla sem lesa að sjá sjálfa sig í Bóbóunum. Í greininni segir m.a: Hvíta ruslið er líklegast eini hópurinn sem hinn pólitíski rétttrúnaður gefur skotleyfi á. Hvíta ruslið býr til góðan smekk Bóbóunum til handa með því að stunda sinn vonda smekk. Hérlendis er hvíta ruslið hinir ómeðvituðu og smekklausu neytendur. Fólkið sem sér ekkert athugavert við úthverfin, stríð í Írak eða Kárahnjúkavirkjun. Hvíta ruslið fer í lýtaaðgerðaþætti í sjónvarpinu, á blautbolakeppni og á rallímót. Bóbóinn myndi aldrei láta sjá sig á slíkum samkomum nema í mótmælaskyni eða í einhverskonar grín bríeríi, gríni og yfirlæti eins og íslenski hvíta rusls karakterinn Silvía Nótt tjáir eða sumar persónur Legs Hugleiks Dagssonar.
24.4.2007 | 10:15
Frelsisþulan gamla
Í grein dagsins rifjar Steinnunn Gyðu-og Guðjónsdóttir upp baráttulag fyrir jafnrétti frá árinu 1975. Hún skoðar í framhaldi hversu mikla þörf við höfum enn fyrir boðskap þessa baráttulags. Í greininni segir m.a: Því frelsisþulan gamla er fjarska lítið sönn og félagshyggju og jafnrétti miðar ekki spönn.
23.4.2007 | 09:11
Frelsi til menntunar
Fyrr í mánuðinum kynnti Stúdentaráð Háskóla Íslands áherslur stúdenta í menntamálum fyrir komandi kosningar. Af því tilefni gaf ráðið út stefnuskrá og skoraði á stjórnmálaflokkanna að gera stefnumál ráðsins að sínum og berjast þannig fyrir betra samfélagi. Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um eitt helsta áherslumál stúdentahreyfingarinnar - andstöðuna við skólagjöld. Segir meðal annars: ,,Sé það markmið okkar að hækka menntunarstig þjóðarinnar ef ekki til að vera í fremstu röð meðal þjóða, heldur einungis til að halda í við nágrannaríki okkar er erfitt að sjá hvernig upptaka skólagjalda við opinbera háskóla geti samrýmst því. Það þarf ekki hagfræðing til að benda á þá augljósu staðreynd að aukin gjaldtaka leiði til þess að færri sæki sér háskólamenntun.
21.4.2007 | 17:14
Hægriflokkar eru ekki velferðarflokkar
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig þingmanni í Reykjavík suður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2007 | 11:24
12. maí
13.4.2007 | 12:15
Togstreita frekjunnar
Í grein dagsins fjallar Elín Ósk Helgadóttir um það hversu erfitt það getur verið að ætla bæði að vera fylgjandi kynjajafnrétti og jafnrétti til náms á Íslandi í dag. Hún telur að jafnréttissinnum sé óhjákvæmilega boðið upp á óþægilega afarkosti. Í greininn segir m.a: Mér stendur ekki til boða að senda barnið mitt í grunnskóla þar sem markvist er unnið eftir þeirri kenningu að kyn skipti máli nema ég velji einkarekinn skóla til þessa að uppfræða börnin mín.
12.4.2007 | 16:13
Frjálslyndur rasismi
Í grein dagsins fjallar Atli Bollason um það sem honum sýnist uggvænleg þróun í íslenskum stjórnmálum. Hann fjallar um frjálslynda flokkinn, málefni innflytjenda og skoðar sérstaklega þá furðulegu orðræðu sem flokkurinn viðhefur um þau mál. Í greininn segir m.a: Frjálslyndir vonast til að leiða orðræðuna og skilgreina valkostina, skapa óttann og hjátrúna. Munurinn á þeim og ríkisstjórninni er að hér er spurningin ekki um ál eða hnignun eða hagvöxt eða hálendið, heldur um það hvort Íslendingar vilji friðsælt og hvítt þjóðfélag eða svart gettó með bílabrennum, glæpum og ofbeldi. I þeirra heimi er það bara annaðhvort eða. Tvískautun af þessu tagi er algengt áróðursbragð og hefur verið nefnt ýmsum nöfnum. Það sem gerist er að tveimur hugtökum er teflt saman og þau látin tákna gott og illt, plús og mínus. Við þessa einföldun spillist tungumálið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006