Hraðbraut á milli brjósta fjallkonunnar sem ber hjálm í skiptum fyrir skaut?

kvenleiki.jpgKonur og náttúra eru vörumerki Íslands. Dásamlegar konur er í það minnsta oft notaðar til að selja ferðamönnum ferðir til náttúruperlunnar Íslands og eru þær ýmist djammdruslur eða guðlegar þokkagyðjur sem ganga á vatni. Telma Magnúsdóttir, ferðamálafræðinemi veltir fyrir sér hvort ímyndin hafi jákvæð áhrif: Spurningin er hvort íslenskar konur meðvitað eða ómeðvitað láti ímyndina stjórna sér. Að sama skapi verður íslensk náttúra fyrir stöðugu áreiti þeirra sem vilja nýta fegurð hennar og krafta.

 

Lesa meira um ímynd Íslands... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Telma er fyrrum nemandi minn.  Spurningar hennar eru nærtækar en samt sem áður held ég að verund íslenskra kvenna sé fjarri því að vilja láta hafa sig að bitbeini í ímyndarsköpun druslunnar. Naomi Wolf sagði að vestrænar konur væru  viðkvæmar fyrir að vera merktar því að vera "sluts" þegar að frelsi þeirra sem kynvera væri loks í augsýn. Konur eru æðislegar en því miður oft notaðar í myndlíkingu fyrir náttúruna og lendur sem hægt er að þjóðnýta. Vona að vinkonu og nemanda gangi vel í vegferð sinni að lokaverkefni.

Anna Karlsdóttir, 11.10.2007 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband