Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Refsipólitík og agi

judge_hammerElín Ósk Helgadóttir fjallar í grein dagsins um sifjaspell og þörf samfélagsins til að refsa brotamönnum heiftarlega. Áður en almenn umræða um kynferðisbrot hófst má kannski segja að samfélagið hafi komið sér saman um að þessi brot ættu sér ekki stað eða í það minnsta væru þau svo óalgeng ekki tæki því að ræða um þau. Á þessum tíma var t.d. að finna í kennslubókum fyrir heilbrigðisstéttir að kynsjúkdómurinn lekandi smitaðist einungis með samförum nema þegar litlar stúlkur ættu í hlut. Í tilvikum þeirra smitaðist lekandi með t.d. handklæðum, svömpum og hitamælum  

Lesa »


Lög, regla og samfélag

2347080091-259x300Í grein dagsins fjallar Sverrir Bollason um stöðu löggæslumála á Íslandi. Um fjárskort og manneklu - Glæpi og refsingu. Það verður að segjast eins og er að allur málaflokkur löggæslumála sé í klandri hér á landi og það er farið að leggjast á sálarlíf fólksins í landinu. Sýnileg löggæsla, innrás útlendra glæpaklíkna, móttaka kæra og eftirfylgni þeirra, mönnun lögregluliðsins, sókn mála fyrir dómstólum, þyngd dóma, áherslur dómstóla og skipun dómara, yfirfull fangelsi og skortur á fleiri úrræðum en fangelsun. Ekki stendur steinn yfir steini í nokkrum þessara mála.  

Lesa >>


Af hipsterum og hipsterisma

vice1-237x300Karl Tryggvason fjallar í sinni fyrstu grein hér á Vefritinu um fyrirbærið hipster. Hann veltir fyrir illskiljanlegum skilgreiningum á fyrirbærinu og hvernig þeir virðast allsráðandi á strætum stór- og smáborga. Douglas Haddow telur hipsterinn afkvæmi hugsjóna og hugmynda andmenningarhreyfinga fyrri áratuga (e. counterculture). Þannig hafi hipparnir, pönkararnir, umhverfisverndasinnarnir og hip hop-ararnir og allt sem þeir stóðu fyrir runnið saman og útkoman er hipsterinn, alþjóðlegt en illskilgreinanlegt fyrirbæri sem lifir stílíseruðum en innihaldslausum og hugsjónalausum lífstíl.

Lesa meira>>


Trúðu þeim er leita sannleikans, ekki þeim sem segjast hafa fundið hann

trailerkompasÍ grein dagsins fjallar Kamilla Guðmundsdóttir um fréttaþáttinn Kompás og veltir fyrir sér hvort leitin að sannleikanum eða einföld sölumennska ráði för við efnistök og framsetningu þáttanna. En hversu langt geta fréttamenn gengið í rannsóknarblaðamennsku sinni? Sumir myndu ætla að engin takmörk væru fyrir því hversu hnýsin þessi starfstétt megi vera svo framarlega sem siðareglum Blaðamannafélagsins og almennum lögum er fylgt. Það vakti því óneitanlega athygli á sínum tíma þegar dæmt var í máli manns sem var einn þeirra sem beit á agn Kompásmanna og freistaði þess að hitta barnunga stúlku í íbúð í Reykjavík.

Lesa meira


Tíminn, rúmið og lesandinn

bækurErla Elíasdóttir á grein dagsins: Þessi þróun veltir því upp hvaða fyrirbæri önnur kunni einhvern daginn að víkja fyrir nýjustu tækni og vísindum. Um leið og tæknin blómstrar á umhverfið undir högg að sækja og hefur trjáafurðin bók verið nefnd sem dæmi um mögulegan óþarfa í samfélagi framtíðarinnar. Í því samhengi má nefna að hér í bænum er ekki bókabúð, sem ég tel að einhverju leyti stafa af auðveldu aðgengi að netverslunum. Sumir virðast þó telja það tímaspursmál hvenær bækur hætta að koma út á áþreifanlegu formi. Lesa meira>>

Tölum um sjúkratryggingar

Rætt er um sjúkratryggingar á Alþingi í dag. Sverrir Bollason segir margt vitlausara en að taka sér góðan tíma til að ræða grundvallarbreytingar í samfélaginu og gagnrýnir heilbrigðisráðherra fyrir slæleg vinnubrögð við að kynna sjúkratryggingafrumvarpið: Frá því Guðlaugur Þór Þórðarson tók við sínu embætti sem heilbrigðisráðherra hefur hann orðið sem huldumaður í íslenskri stjórnmálaumræðu. Hann er sá ráðherra sem minnst sést í fjölmiðlum og orðið á göngum heilbrigðisstofnana er að þar sé hann ekki síður ósýnilegur. Það eru ekki líðandi vinnubrögð í lýðræðisríki nútímans að umræðan um svo veigamikið mál fari bara fram undir stífum formerkjum fundarskapa Alþingis.

 Lesa meira um ósýnilega heilbrigðisráðherrann!

 


mbl.is Samþykktar sjúkratryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kreppa á Íslandi?

Mynd_2Í grein dagsins fjallar Arnaldur Sölvi Kristjánsson um efnahagsástandið á Íslandi og hvort krepputal eigi rétt á sér: Hagfræðingar nota hugtakið kreppa til að lýsa alvarlegum samdrætti í efnahagslífinu. Með samdrætti er átt við að framleiðsla þjóðarbúsins á vörum og þjónustu hefur minnkað. Það má því segja að tvenn skilyrði einkenni kreppu: minnkandi landsframleiðla og aukið atvinnuleysi.

Lesa meira>>


Utanríkismál á mannamáli

Grein dagsins á Ásþór Sævar Ásþórsson, en hann var einn þeirra sem sótti í gær opinn fund í Iðnó með Miguel Ángel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar: Á fundinum voru Evrópumálin líka til umræðu, enda er Spánn mjög virkur þátttakandi í Evrópusambandinu. Oft heyrir maður kallað á það að dýpka þurfi umræðuna í Evrópumálum eða færa hana upp á annað plan. Þeir sem tala svona, eru oftast líka þeir sem segja að Ísland hafi hagnast á aðildinni af Evrópska efnahagssvæðinu og þess vegna sé lítil ástæða til að endurskoða stöðu Íslands í Evrópusamvinnunni. Það er semsagt eina markmiðið með Evrópusamstarfi Íslendinga að við græðum á því.

Lesa meira>>


Segjum NEI við ofbeldi gegn konum!


Í grein dagsins fjallar Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir um átak UNIFEM - Segjum NEI við ofbeldi gegn konum: Heimur sem stendur frammi fyrir því að þriðja hver kona verði fyrir ofbeldi á lífsleið sinni, þar sem konur eru í meiri heilsufarslegri hættu vegna nauðgana eða heimilisofbeldis en krabbameins, umferðarslysa og malaríu samanlagt, þar sem 130 milljónir kvenna hafa verið limlestar á kynfærum verður að gera eitthvað í málunum.
Lesa meira>>

Framganga veitir virðingu en ekki stólar


Í grein dagsins hvetur Guðlaugur Kr. Jörundsson leiðtoga þjóðarinnar til að vinna sér inn virðingu líkt og landslið karla í handbolta hefur gert: Mikið hefur vantað upp á að leiðtogar þjóðarinnar hafi komið fram að festu og öryggi í niðursveiflunni sem nú á sér stað. Það er ekki trúverðugt að þakka sér uppganginn og fría sig svo ábyrgð á niðursveiflunni. Lesa meira>>
mbl.is Greining Glitnis: Aðgerðarleysi orðum aukið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband