Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Gersemar Galapagos-eyja í hættu?

vefrit 6yfirlitÍ vikunni var tilkynnt að UNESCO hefði ákveðið að Galapagos-eyjar myndu bætast á lista þeirra náttúrulegra svæða í heiminum sem væru í mikilli hættu. Það telst til tíðinda þegar nýjum svæðum er bætt við þann lista og ekki beint gleðiefni. Það að Galapagos-eyjar séu komnar á listann ítrekar ekki einungis verndargildi þeirra heldur einnig hversu erfitt það getur verið að vernda svæði þar sem náttúrufar er einstakt. Af þessu tilefni ákvað Snorri Sigurðsson að fjalla um þessar einstöku eyjar í þessum föstudagspistli. „Þrátt fyrir afar skýra verndarstefnu síðustu áratugina og strangar reglugerðir steðja ótal vandamál að eyjunum. Mesta hættan steðjar vitanlega að viðkvæmu lífríkinu. Þar eru innfluttar tegundir alvarlegasta vandamálið.”

Ég vil klárlega lesa meira!


Verst launuðu stjórnendurnir

v-bbeieifdibVerðmætamatið í þjóðfélaginu getur verið ansi furðulegt á köflum. Það getur að minnsta kosti verið erfitt að átta sig á því af hverju við viljum ekki borga þeim stéttum sem sjá um umönnun og uppeldi barna okkar mannsæmandi laun. Laun þessara stétta virðast alltaf sitja eftir, sama hve mikið góðærið er. Gró Einarsdóttir veltir því fyrir sér í grein dagsins af hverju við metum leikskólakennara ekki meira en raunin er. „Laun senda skilaboð um hvers virði hvert starf er fyrir samfélagið. Flest störf eru því meira virði en störf þeirra sem stuðla að þroska barna. Bankar eru mikilvægari en börn. En eru þetta virkilega skilaboðin sem við viljum senda?”

Lesa meira....


Flóamenn, fossinn og framtíðin

landsvirkjunÞessa dagana er stemmningin svolítið þannig að það sé bara spursmál hverjir verða fyrstir að byggja nýtt álver og hvar eigi að virkja næst. Nýverið bárust svo þær fréttir að lýðræðið sé farið að styðjast við hækjur, eftir að hafa verið tekið í jörðina af forstjóra Landsvirkjunar. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar í dag um þá atburði: „Enn er óljóst hvort áform Landsvirkjunar verði ofaná eða hvort stór hluti íbúa Flóahrepps – að sveitastjórninni meðtalinni, náttúruverndarsinnum og öllum hinum sem ekki styðja virkjanaframkvæmdirnar verði að ósk sinni.

Endilega lesa meira...


Ást á pöbbnum

gunnar_largeblogAf einhverjum illskiljanlegum ástæðum virðist fólk sækjast í að búa í Kópavogi og undanfarin ár hefur fjölgað í bæjarfélaginu sem aldrei fyrr.  Á meðan að bærinn blæs út er núverandi bæjarstjóri Kópavogs einhver umdeildasti maður landsins, hvort sem það varðar trjárækt eða nektardans. Í tilefni af því vildi Kópavogsbúinn Dagbjört Hákonardóttir nýta þennan þriðjudagspistil í að fjalla um stemminguna í Kópavogi og jafnvel minnast aðeins á hann Gunnar sinn. „Ég kalla þann heiður þó vafasamastan að tilheyra hinum sístækkandi hópi Kópavogsbúa, og þar sem ég hef alla mína 23 ára tíð búið í Blikabæ hef ég upplifað tímana tvenna innan marka bæjarfélagsins.”

 

Þetta er augljóslega skyldulesning.


Þú ert sjálfur dóni!

ven_hotsign.jpgÍslendingar hafa aldrei þótt neitt sérstaklega þjónustuglaðir, en undanfarið hefur mörgum þótt keyra um þverbak. Hrafn Stefánsson ákvað því að skrifa grein mánudagsins fyrir þau ykkar sem hafa nýlega farið á kaffihús í miðbænum, eytt löngum tíma í að reyna ná athygli þjónustustúlkunnar, panta svo mat sem er full dýr, fá matinn seint um síðir og þá kemur í ljós að einhverjum tókst að klúðra pöntuninni. „Það er að sjálfsögðu óréttlát alhæfing að segja að allir Íslendingar veiti lélega þjónustu. Engu að síður virðist vera algengara að fá lélega þjónustu en góða. Hvernig getur staðið á þessu? Vantar þjónustulund í íslenska menningu eða eiga Íslendingar erfiðara með samskipti við ókunnuga en aðrar þjóðir?”

Skoða greinina...

 


Hvað gerist núna með Ísland og ESB?

joakim.gifRitstjórn Vefritsins óskar landsmönnum gleðilegs sunnudags og reiðir í dag fram dýrindis helgarumfjöllun með kaffinu. Anna Pála Sverrisdóttir spáir í hvað muni gerast í Evrópumálum Íslands, rennir í gegnum nýlega skýrslu Evrópunefndar og deilir nokkrum punktum og pælingum með þeim örfáu sem ekki lásu skýrsluna í heild. „Og hvað á þetta svo allt að kosta, er spurning sem Íslendingar virðast velta fyrir sér framar öðru þegar rætt er um ESB. Ekki þýðir að ræða hugsjónir um frið í Evrópu eða bætta stöðu austurhluta álfunnar. Íslendingum er drullusama um svoleiðis.

Maður er ekki viðræðuhæfur nema hafa lesið þessa grein.


Rökuð klof á kvenréttindadegi

lawnmower-pubic-tatooGetur nokkur kona orðið hugsað sér að fara órökuð í sund? Samkvæmt viðtali sem Þórgunnur Oddsdóttir horfði á þann 19. júní getur það verið slæmt: „Þetta með sjálfstraustið bar að sjálfsögðu á góma í sjónvarpsviðtalinu sem greint var frá hér að framan. Snyrtifræðingurinn sagði að konur vildu ekki fara í sund eða almenningssturtur loðnar að neðan.“ Tóta setur spurningarmerki við þetta og ber saman við ólíkar kröfur sem gerðar hafa verið til kvenna á ýmsum tímum um að líta rétt út.

Lesa meira...


mbl.is Óútskýrður launamunur kynjanna 10-12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Ég fagna forræðishyggju!“

obeinar_reykingar_100406.JPGReykingabann tók gildi fyrir fáeinum vikum. Um það hefur að sjálfsögðu verið mikið rætt. Í dag leggur Eva Bjarnadóttir sitt til málanna og tekur djarfa afstöðu. „Frelsi manna til þess að gera það sem þeir vilja, svo lengi sem það skaðar ekki aðra menn víkur fyrir frelsi manna til þess að gera það sem þeir vilja, svo lengi sem það skaðar ekki markaðinn.“

Áhugavert...


… Það sem fyrir okkur er haft…

anchorman.jpgHæ, hó og jibbý jei og jibbýýý jei… Það er kominn 19. júní! Saga Garðarsdóttir skrifar í dag um konur og fjölmiðla. Hún fjallar um galdratöluna 30/70 og lýsir eftir nokkrum þekktum fyrrum fjölmiðlakonum sem hafa yfirgefið stéttina. „Hvað hefur orðið um allar miðaldra fréttakonur þessa lands? Hví hverfa þær af sjónarsviðinu um leið og þær hafa öðlast reynslu og eru komnar upp að hliðinni á körlunum…“ Ritstjórn Vefritsins óskar gleðilegs kvennadags og vonar að allir sem vilja fullt jafnrétti, beri eða geri eitthvað bleikt í dag.

Lesa greinina...


Dubai – Fyrsti hluti

burj-al-arab1.JPGDubai mætti hugsanlega kalla nútíma útgáfu ævintýrisins Þúsund og ein nótt. Vefritið birtir í dag fyrsta hluta skrifa Styrmis Goðasonar um uppbyggingu atvinnulífs í Dubai, en þar horfa menn upp á þverrandi olíulindir og leita nýrra tækifæra: Til að nefna dæmi um hversu ýktar allar framkvæmdir og hugmyndir eru, er nú búið að lengja strandlengju Dubai úr 75 km í 1500 km. Það er skíðasvæði í verslanamiðstöðinni sem býður upp á vel samkeppnishæfar brekkur, að minnsta kosti miðað við Bláfjöllin.

Tékkum á þessu


Næsta síða »

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband