Í grein dagsins fjallar Halldóra Þórsdóttir um eiturlyfjasportið hjólreiðar. Segir meðal annars í greininni: ,,Á þennan dýrðarljóma reiðhjólsins skyggir aftur á móti sú vel þekkta staðreynd að Tour de France er í dag ekki frægust fyrir afreksmenn sína, tímamet þeirra eða aðrar hreystisögur, heldur fyrir dóp. Fréttaflutningur frá keppninni, sem nú er nýyfirstaðin, hefur þannig að miklu leyti snúist um þá fjóra sem voru felldir úr keppni vegna lyfjaneyslu. Þannig voru mörgum það t.d. gríðarleg vonbrigði þegar 24 ára gamli Ítalinn Riccardo Ricco var leiddur frá keppni í lögreglufylgd eftir að fjórða lyfjaprófið hans reyndist jákvætt.
Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
25.7.2008 | 10:09
Af sexý nauðgun - sem endaði sem sexý dómstóll?
Þessi mynd birtist með frétt á Vísi í vikunni sem fjallaði um ítalskan dómstól sem komst að því að ekki væri nóg að vera klæddur í gallabuxur til að verjast nauðgun. Bryndís Björgvinsdóttir skrifar í Vefritspistli dagsins um fréttamyndir sem breytast í rúnk og húga-búga fréttir - skondnar fréttir af ömurlegum atburðum sem breitt er yfir með einhvers konar rúsínu í pylsuendanum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.7.2008 | 11:07
Mistök?
Hver er munurinn á mistökum og rangri stefnu? Steindór Grétar Jónsson veltir þessu fyrir sér í grein dagsins. Er þá lengur hægt að tala um hagstjórnarmistök? Er þetta ekki brotlending hægristefnunnar, sem hefur ráðið ríkjum seinustu 17 ár eða svo? Stefnunnar sem hefur tekið lán hjá framtíðinni til að borga fyrir veislu gærkvöldsins? Stefnunnar sem selur raforkuna mengandi lægstbjóðanda, elur á ójöfnuði og hatast við Evrópusambandið? skrifar Steindór.
Bensínverð úr takti við heimsmarkaðsverð? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2008 | 10:18
Dropinn sem fyllir mælinn
Við sem lifum og hrærumst í vestrænu samfélagi eigum það til að líða í gegnum tilveruna eins og svefngenglar og skeyta litlu um hluti sem eiga sér stað utan okkar nánasta umhverfis. Kamilla Guðmundsdóttir gagnrýnir þennan hugsunarhátt í grein dagsins á Vefritinu: Hjartað í okkur tekur sjaldan kipp nema þá kannski þegar við heyrum að það eigi ekki að framleiða aðra seríu af Lost eða ef lykilpersóna í Desperate housewives er klippt út úr handritinu. Það hefur öllu minni áhrif á mörg okkar að heyra um stríðsátök í fjarlægum löndum, mikið mannfall vegna náttúruhamfara eða þann gífurlega fjölda fólks sem missir lífið daglega vegna hungurs og vosbúðar.
Þrýst á Serba að finna Mladic | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
22.7.2008 | 10:49
Viðsnúningur í skattastefnu
Ekki hætta á hagsmunaárekstrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2008 | 10:43
Draumur veruleikans
Vefritspistill dagsinn er helgaður endurminningabók sem Elín Ósk Helgadóttir var að leggja frá sér. Elín rifjar í greininni upp heilt sumar sem hún tvítug eyddi hjá vini sínum Fidel og börnum hans: ,,Eitt barna þessa vinar míns er kvikmyndagerðamaðurinn Idelfonso Ramos. Á heimili hans og Rebeccu konu hans við E götu í Vedado hverfi í Havana var ég tíður gestur. Fyrst kom ég færandi hendi með saltfisk frá Íslandi og síðast fór ég með gjafir til barnabarna hans á Íslandi. Hann er merkilegur maður og kenndi mér margt um vin minn Fidel og uppeldisaðferðir hans. Oft hefur því verið haldið fram að bak við hvern merkilegan mann sé enn merkilegri kona og þá í hans tilfelli fyrrverandi kona.
Lesa meira um Fidel, sósíalista og Sovétríkin ...
22.7.2008 | 10:41
Stelpurnar og strákarnir
,,Hvað er málið með þetta stelpu- og strákatal alltaf hreint? Endalausar flokkanir og skilgreiningar sem eru svo úreltar að ég fæ kjánahroll. Ég verð oft hrikalega pirruð og stundum jafnvel ringluð þegar ég verð vitni að einhverju svona. Hvað er það að vera strákur og hvað er það að vera stelpa? skrifar Eva María Hilmarsdóttir í grein dagsins
Lesa meira kynbundnar staðalímyndir og sveittan mat...
18.7.2008 | 13:58
Samsærismyndir og heimildargildi
Það er vægt til orða tekið að segja að það hafi verið gósentíð fyrir samsæriskenningarsmiði síðan að hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin 2001. Gífurlegur fjöldi kenninga hefur sprottið fram um hvað í raun og veru gerðist þennan örlagaríka dag og flestar kenninganna eru á þá leið að ríkisstjórn Bandaríkjanna hafi vitað af árásunum og ekkert gert og jafnvel verið einn af skipuleggjendum atburðanna. Atli Rafnsson fjallar í grein dagsins um netheimildamyndir og hversu vafasamt er að taka þær of bókstaflega.
Skipulögðu árás á þyrlu Bush | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2008 | 10:13
Öllum vopnum beitt
Í grein dagsins fjallar Örlygur Hnefill Örlygsson um stríðsdrauma George Bush og John McCain. ,,Svo virðist sem þetta sé orðin einhverskonar þráhyggja þeirra Bush og McCain, en sá síðarnefndi fagnaði á dögunum auknum útflutningi á sígarettum frá Bandaríkjunum til Íran og sagði það hjálpa til við að drepa Írani. Sýna ummæli sem þessi hversu barnslegar hvatir liggja að baki. Af ummælum sem þessum má ráða að helsta markmiðið sé að drepa sem flesta.
Já! Ég vil svo sannarlega lesa meira um stríðsfantasíur Bush og McCain!
Assad: Stríð yrði dýrkeypt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.7.2008 | 10:09
Minning: Íslenska krónan
Hún var örmagna. Það var þó reynt að hjálpa henni. Hún treysti ráðum þeirra sem komu til hennar í búningi lækna. Hún fékk dugmiklar sprautur. Hún lifnaði við. Fann sína fyrri reisn. En dalurinn sem á eftir kom var dýpri. Hún var orðinn fíkill. Bað um fleiri og fleiri sprautur. Í ráðleysi sínu gáfu læknarnir henni fleiri sprautur. Að lokum eina stóra sem fannst austur á landi. Grein dagsins er minningargrein Guðlaugs Kr. Jörundssonar um íslensku krónuna. Lesa »
Krónan styrkist um 0,64% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006