Bölvaður bjórinn II

Áfengis- og tóbaksverslun ríksinsFrumvarp fjórtán þingmanna úr stjórn og stjórnarandstöðu um afnám einkasölu ríkisins á bjór og léttvíni var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi fyrir viku síðan. Agnar Freyr Helgason fjallar í grein dagsins um málið, sem margoft hefur komið til kasta þingsins án þess að fá afgreiðslu úr nefnd: „Vandséð er hvað veldur því að málið fái ekki brautargengi enda nýtur það þverpólitískrar samstöðu og hafa skoðanakannanir sýnt að meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi því að bjór og léttvín megi selja í matvöruverslunum. Í ljósi þessa hljóta því að liggja fyrir veigamikil rök gegn breytingunni enda virðist almennur vilji vera fyrir því að frumvarpið nái fram að ganga. Lesa meira.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Skoðanakannanir eru ekki lýðræðisleg staðreynd heldur spá  sem orkar oftar en ekki tvímælis. Þótt þverpólitískir þingmenn beri frumvarpið fram er ekki víst að meirihluti sé fyrir framvarpinu. Reynslan sýnir að gott aðgengi að víni eykur söluna. Hitt sjónarmiðið er að aukin sala er ekki til almannaheilla. Reikna má með að hér sé frekar um hagsmuni/græðgi seljaenda víns að ræða.

Ef yrði þjóðaratkvæða greiðsla um frumvarpið yrði hörð umræða og ekkert gefið að það yrði samþykkt hvað sem skoðanakannanir sýna nú.

Allt það böl sem víndrykkja veldur kæmi fram í dagsljósið: Sjúkdómar, fjölskylduofbeldi, umferðaslys og örkuml svo eitthavða sé nefnt.

Gaman væri að  að vita hvaða þrýstihópar standa að baki frumvarpinu og hvort það sé lagt fram vegna almannaheilla.

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 9.2.2007 kl. 03:03

2 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Ég get tekið undir þetta sem hér kemur fram hjá 2 síðustu ræðumönnum. Varðandi það sem höfundur nefnir með samrekstur vínbúða út um land með einkaaðilum má það gjarnan koma fram að á mörgum minni stöðum vöruvalið mjög takmarkað. Vínbúðunum er skipt upp í stærðarflokka og stærðin mæld í tegundum sem boðið er upp á. Stærst er sjálfsagt Heiðrún með ótölulegan fjölda tegunda (1000 - 2000) og þær minnstu 200 - 300 teg. Semsagt fólk sem býr á minni stöðum úti á landi þarf ekki að geta valið úr miklu úrvali tegunda, enda væri það bara hættulegt það myndi berja nágrannana og keyra á næsta ljósastaur og hvaðeina sem hún Sigríður Laufey minnist á.

Gísli Sigurðsson, 10.2.2007 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband