Þú berð ábyrgð

Nú er komið að því að allir axli ábyrgð. Stjórnmálamenn, bankafólk, seðlabankastjórar, ég og þú. Í grein dagsins fjallar Styrmi Goðason um þau tímamót sem við stöndum á. Í grein dagsins segir meðal annars: …nú er komið að okkur kjósendum. Það er komið að okkur að velja rétt. Er hjálplegt að skila auðu? – nei. Er hjálplegt að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða Framsóknarflokkinn? – nei! Það væri hjálplegt ef við litum í eigin barm. Við getum aðstoðað í kosningabaráttu, boðið okkur fram, stofnað stjórnmálaflokka, haft áhrif í hagsmunafélögum, viðhaft gagnrýna hugsun og sýnt að við öxlum ábyrgð á eigin framtíð en ekki “stjórnmálamennirnir”.

 

Lesa meira um hvernig þú getur tryggt bjarta framtíð Íslands ...


Stöndum vörð um LÍN

Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um Lánasjóð íslenskra námsmanna og mikilvægi þess að standa vörð um hlutverk hans á komandi misserum. Í stað þess að láta starfsemi hans bitna á fyrirsjáanlegum niðurskurði í ríkisbúskapnum telur Agnar þvert á móti mikilvægt að efla hann ennfrekar og tryggja þannig jöfn tækifæri allra til framhaldsmenntunnar. Segir meðal annars í greininni: ,,Mikið óhagræði felst í því fyrir námsmenn að fá lánin einungis greidd út tvisvar á ári, auk þess sem ýmsar gildar ástæður geta verið fyrir því að námsmaður skili ekki fullum námsárangri. Ýmsar leiðir er hægt að fara til að bæta úr þessu. Sú sem oftast hefur verið nefnd til sögunnar, greiðsla námslána mánaðarlega, hlýtur að vera kostur sem núverandi ríkisstjórn veltir alvarlega fyrir sér við endurskoðun úthlutunarreglnanna í vor. Slík breyting ætti aukinheldur ekki að krefjast mikilla fjárútláta.

 Lesa meira um málið hér


Mildum höggið

Í grein dagsins fjallar vefritspenninn Þórður Sveinsson um það samhengi sem hafa verður í huga þegar brugðist er við efnahagskreppunni. Hann telur að horfa verði út fyrir rammann byggare_copy.jpgþegar ákveðið er hvað skuli til bragðs taka, til dæmis skera niður. Gæta verði þess að einstakar aðgerðir snúist ekki upp í andhverfu sína. Það feli í sér að líta verði til langtímaáhrifa en ekki aðeins skammtímaáhrifa. „Þegar brugðist er við efnahagsþrengingunum verður að hafa ofangreint samhengi í huga. Þess vegna verður fjárhagslegur niðurskurður að byggjast á skynsemi og yfirvegun. Á sumum sviðum ætti jafnvel að auka útgjöld fremur en að spara. Sem dæmi má nefna heitan mat í grunnskólum. Nú er ráð að gefa börnum ókeypis skólamáltíðir svo að tryggt sé að þau fái öll holla og góða næringu en við núverandi aðstæður er því miður alls ekki víst að sú sé raunin.“

 

 

Ég vil lesa meira um mannúðlegar aðhaldsaðgerðir!


Hold me, thrill me, kiss me, kill me!

geirogingibjörgÍ grein dagsins veltir vefritspenninn Anna Pála Sverrisdóttir fyrir sér undarlegum áhuga fjölmiðla á (ó)faglegum samskiptum forystumanna stjórnmálaflokka í ríkisstjórnar- og borgarstjórnarsamstarfi. Má jafnvel skilja umfjöllun þeirra og efnistök á þann veg að ef gagnkynheigt fólk af gagnstæðu kyni gegnir þessum stöðum, hljóti þau að vera skotin í hvoru öðru: “Af hverju þarf að sýna Kossinn svona oft? Auðvitað fór enginn í sleik en mér finnst að með þessu sé verið að reyna að búa til kynferðislega spennu á milli stjórnmálamanna af gagnstæðu kyni. Með því að sýna eilíflega þetta augnablik er gert minna úr faglega sambandinu á milli þeirra.”

 

Hverjir voru að kyssast? Var einhver að kyssast? Skiptir það máli? Bæði og - en ég vil a.m.k. lesa Vefritsgrein dagsins! 


Pólitískt Stúdentaráð er eina vitið

roskva.jpgÍ dag og á morgun ganga yfir 13.000 stúdentar við Háskóla Íslands til kosninga. Aldrei hafa verið jafn margir á kjörskrá og í seinni tíð hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt að stúdentar fjölmenni á kjörstað. Líkt og undanfarin ár hefur kosningabaráttan í Háskólanum að miklu leyti snúist um það hlutverk sem fylkingarnar sem bjóða fram telja að Stúdentaráð eigi að hafa. Í grein dagsins fjallar Vefritspenninn Dagný Ósk Aradóttir um mikilvægi þess að Stúdentar mæti á kjörstað og styðji Röskvu í þessum kosningum. “Þetta er þó svo undarlegt því öll hagsmunabarátta er í eðli sínu pólitík. Jafnrétti kynjanna er pólitík, jafnrétti til náms er það líka, LÍN er pólitík og bara sú staðreynd að til sé Háskóli Íslands sem er að mestu rekinn af almannafé er pólitík. Að viðurkenna sig ekki sem pólitískt afl sem hefur skoðanir á pólitískum hlutum hlýtur að veikja málstaðinn og koma niður á stúdentum.”

Já, Ég vil lesa meira um pólitískt Stúdentaráð og rödd stúdenta!


mbl.is Vona að atburðir við þinghúsið boði ekki nýja siði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameinumst um jafnrétti og lýðræði

handaband.jpgFlokkakerfið hefur verið nokkuð umdeild síðustu daga og vikur. Margir telja að það virki illa og sé í raun til lítils nýtt. Aðrir hafa bent á að flokkakerfið veiti venjulegu fólki einstakt tækifæri til að hafa áhrif á störf stjórnmálamanna án þess að það þurfi að hella sér á fullu út í pólitík. Vefritspenninn Guðlaugur Kr. Jörundsson fjallar í grein dagsins um reynslu sína af starfi innan stjórnmálaflokks og hvernig hann vill sjá það þróast á næstunni. “Það tekur á að vinna að breyttu samfélagi. Það er létt að tapa sjónum af framtíðinni og huga einungis að baráttunni um vandamál líðandi stundar. Það er auðvelda leiðin að takast einungis á við amstur dagsins og sigla þannig stefnulaust inn í framtíðina. Flokkurinn minn fór í stefnulausa sjóferð og vonaði það besta á meðan hann hamaðist við það að sanna sig með því að uppfylla sem flest kosningaloforð.”

 

Já, ég vil svo sannarlega lesa meira um þetta!


mbl.is Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgjörið við auðvaldið

rettrikisstjornjobama1.jpgÍ gær tók við völdum ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna. Framsóknarflokkurinn mun verja ríkisstjórnina falli en hlutverk hans er að öðru leyti enn nokkuð óljóst. Á Íslandi situr því raunveruleg félagshyggjustjórn í fyrsta skipti í 18 ár. Vefritspenninn Þórir Hrafn Gunnarsson fjallar í grein dagsins um mikilvægi næstu kosninga og hverjir það verða sem munu beita sér gegn félagshyggjuöflunum. “Þessi nýja félagshyggjustjórn er ekki í öfundsverðri stöðu. Það er verkefni hennar að taka við þrotabúi nýfrjálshyggjunnar, en Ísland hefur undanfarin ár verið notað sem tilraunaverkefni í öfgakenndri hugmyndafræði hennar. Þeir tímar eru nú liðnir og uppbyggingarstarfið þarf að hefjast af fullum krafti.”

Já! Ég vil að sjálfsögðu lesa meira um ríkisstjórn Jóbama og auðvaldið!


mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins var hlustað á þjóðina

Þegar Dagný Aradóttir skrifaði grein dagsins voru eiginlega engir ráðherrar á Íslandi. Að minnsta kosti enginn með pólitískt vald. Verið var að mynda nýja ríkisstjórn eftir sögulega mótmælaöldu á götum stærstu bæja landsins. Það hlustuðu þó ekki allir á raddir fólksins: „Sjálfstæðismenn hefðu fengið mörg prik í kladdann ef þeir hefðu drifið sig í að losa sig við hann áður en stjórninni var slitið. Geir hefur sjálfur gefið það út að vegna veikinda sinna muni hann stíga til hliðar frá og með landsfundi og segja skilið við pólitík. Með því að hreinsa til í Seðlabankanum hefði hann því ekki verið að eyðileggja einhverja pólitíska framtíð sína. Hvað á þetta að þýða, af hverju er ekki löngu búið að láta Davíð fara?“

 

Lesa meira um heyrnaleysi Sjálfstæðisflokksins ...


Hvar ætti að skera niður?

Í upphafi árs komu upplýsingar frá Þjóðskrá um að hlutfall skráðra Íslendinga í þjóðkirkjuna væri í fyrsta skipti komið undir 80%. Staða kirkjunar hér á landi er nokkuð umdeild en sú krafa verður sífellt háværari að skilja beri á milli ríkis og kirkju. Í Vefritsgrein dagsins fer Bjarni Þór Pétursson aðeins yfir stöðu þjóðkirkjunar í ljósi kreppunar. ,,Er boðlegt að ríkið eyði 5-6 milljörðum á ári (plús ofurlaun presta og skattfríðindi) þegar að brot af þjóðinni nýtir sér þjónustuna þegar þessar tölur eru skoðaðar blákalt? Eða er kannski kominn tími á aðskilnað; þar sem kirkjugestir halda uppi sinni eigin kirkju og milljarðarnir fara í velferðarkerfið eða hreinlega í tóma vasa almennings?”

 

Lesa meira um aðskilnað ríkis og kirkju ...


Skattalækkun eða skattahækkun?

Um áramótin voru gerðar breytingar á skattkerfi þjóðarinnar. Helstu breytingarnar voru meðal annars þær að álagningarhlutfall tekjuskatts var hækkað og að persónulafsláttur hækkaði. Í umræðum í fjölmiðlum var almennt talað um þessar breytingar sem skattahækkanir. Vefritspenninn Arnaldur Sölvi Kristjánsson er ekki sammála þessari fjölmiðlaumfjöllun og bendir á í grein dagsins að skattar hafi almennt lækkað í kjölfar þessara breytinga. “Nettó áhrif breytinganna fela í sér einstaklingar með tekjur á bilinu 100 til 574 þús. kr. á mánuði munu á þessu ári greiða lægra hlutfall tekna sinna í tekjuskatt. Lækkunin er mest hjá fólki með 120 þús. kr. í tekjur eða um 5,5%-stig.”

 

Lesa meira um skattalækkanirnar ...


Há tækni á lágu plani

Hvernig viljum við hafa heilbrigðiskerfi Íslands? Hvað færir okkur mesta heilsu? Er það ef til vill steypa? Í grein dagsins mælir Eyjólfur Þorkelsson fyrir byggingu nýs sjúkrahúss: “Óþörf peningaeyðsla og óþörf áhætta fyrir sjúklinga er hinsvegar nokkuð sem ég sé svo gott sem upp á dag við núverandi aðstæður.”

 

Lesa meira um nýtt sjúkrahús...


Kryddsíld - Taka II

presidio.jpgKryddsíldarmótmælin eru Vefritspennum hugleikin um þessar mundir. Í grein dagsins gagnrýnir Bryndís Björgvinsdóttir almenna umfjöllun um mótmælin. Í greininni bendir Bryndís á að þessi þörf samfélagsins á að skipta íbúunum í góða þegna og vonda þegna, eða skríl, sé ástæðan fyrir því að stjórnvöld og fjárglæframenn virðast komat upp með hvað sem þeir vilja. “Auðmenn og valdhafar hafa fengið að valsa um með frelsi fólks og sparifé í skjalatöskum, án þess að þurfa að rekast á þær fólkið sjálft. Það er fólkið, sem á með réttu þetta sparifé, frelsið og tímann  sem harðsvíruð yfirstétt tók með í kasínóið.”

 

Ég vil svo sannarlega meira...


mbl.is Mótmælendur við alla innganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Förum í fýlu og prumpum í kór

coka.jpgSá sem hefur valdið á orðunum hefur valdið á hugmyndunum. Frjálshyggjan hefur átt orðræðuna svo rækilega á undanförnum árum að vinstrimenn hafa ekki getað komist að og þurft að laga hugtakanotkun sína – og þar með hugmyndir – að lögmálum frjálshyggjunnar. Nú gefst kannski tækifæri til þess að endurheimta hugmyndirnar. Atli Bollason horfir aftur til góðærisins í vefritsgrein dagsins.

Já, ég vil lesa meira um vinstrimenn í góðærinu!


mbl.is Táknmynd góðæris eða kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af sjúku heilbrigðiskerfi á sökkvandi eyju

spitali.jpgÞað er kreppa og allt verður að skera niður segja stjórnmálamennirnir. Guðlaugur Þór hefur ákveðið að hjóla í heilbrigðiskerfið og það með miklum látum. En það er þó mörgum sem finnst forgangsröðunin vafasöm, bæði í góðæri og í kreppunni. “Meðan Björgólfarnir deildu út risaávísunum sínum og Baugsfeðgar og forsetahjónin flugu um í einkaþotum var heilbrigðiskerfið fjársvelt.  Allan tímann sem kampavínið flæddi og enginn pizzustaður gat verið án flatskjás var hamrað á sparnaði á heilbrigðisstofnunum um allt land. ”

Jebb, ég vil sko lesa meira um þetta!


mbl.is Ráðlegging eða boð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er hart í Árni

arnimatt.jpgUmboðsmaður Alþingis segir í áliti sínu að Árni Mathiesen hafi ekki valið hæfasta umsækjandann í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Í grein dagsins spyr Steindór Grétar Jónsson hvort þingmenn Samfylkingarinnar sætti sig við að Árni sitji áfram í ráðherrastól í umboði þeirra. „ Allir ættu nú að geta sammælst um að það var rangt af Árna að skipa Þorstein í starfið, annarlegir hagsmunir hafi þar augljóslega ráðið för og að svona pólitískar skipanir ættu ekki að líðast í frjálsu og opnu lýðræðisríki. Dómarar hafa mikil völd yfir fólki, fjármunum þess, frelsi og framtíð. Það er því sjálfsögð krafa að þeir hæfustu gegni þessum þýðingarmiklu embættum.“

 

Ég treysti Árna Matt til engra verka, en vil samt lesa meira...


mbl.is Mótmælt við Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru stjórnmálaflokkarnir ónýtir?

Í pistli dagsins andæfir Stefán Bogi Sveinsson því að það eigi að kasta flokkakerfinu.

 

“Fyrir bankahrun tóku menn sig til, gerðu upp húsin sín og öllu var hent, ekki af því að það væri ónýtt, heldur af því að það var orðið svolítið “lummó”. Þetta var mér einu sinni kennt að héti sóun og bruðl.”

Ég vil að sjálfsögðu lesa meira um flokkakerfið!


mbl.is Hvítskúrað stjórnarráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálshyggjunni er ekki treystandi fyrir ríkinu

Félagshyggjufólki er ekki treystandi fyrir skattpeningum! Í pistli dagsins skoðar Sverrir Bollason þessa fullyrðingu og er meðal annars ekki frá því að hann noti frjálshyggjuna sem innblástur öðru hvoru. „Þessi prentsmiðja ætti í raun ekki að skipta sér af prentiðnaði, til þess eru mörg önnur fyrirtæki með öðru rekstrarsniði til þess betur fallin!“ Ímyndið ykkur móralinn á þeim vinnustað eftir slíka ræðu. Ímyndið ykkur svo móralinn ef þetta væri í raun eina framlag forstjórans til rekstursins. Sennilega er það ekki svo ólíkt því að starfa hjá ríkisstofnunum hér á landi undanfarin ár.“

 

Já, ég lesa um sviðna jörð frjálshyggjumanna í ríkisrekstri ...


Ísland - næstum því himnaríki?

Bjarni Þór Pétursson leggur út af þáttunum ,,Weird Weekends” í Vefritspistli dagsins. Í einum slíkum ferðast Louis Theroux til Idaho í Montana til að kynnast sjúkum ofur-þjóðernissinnum sem halda úti smáu samfélagi til varnar bandarísku stjórnarskránni og finnur ýmsar samsvaranir við Ísland nútímans: ,,Eins og allir ,,sannir Íslendingar” vita hins vegar að þá er ESB illa innrætt bandalag sem tók áratugi að byggja upp til þess eins að fara illa með Íslendinga samkvæmt leynilegu plani – hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir ætla íslenskir þjóðernissinnar út í þegar að þjóðin samþykkir inngönguna?”
 

Sanngirni og virðing: Viðskiptafrasar næstu ára

Lausnin á efnahagsvanda okkar tíma felst í að gera ekki sömu mistökin aftur. Sverrir Bollason skrifar í grein dagsins um það hvernig íslenskt atvinnulíf eigi að taka til við endursköpun sína án þess að græðgin verði aftur látin ráða för: „Bæði í pólitík og viðskiptum er oft talað um hádegisverðinn sem aldrei er ókeypis. Það þýðir að maður gerir ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn. Skilningur landsmanna á heilbrigðum samskiptum hefur verið brenglaður af því hugarfari að hægt sé að fá allt fyrir ekkert því merkilegt nokk, gekk það um tíma. Það tímabil er liðið og beið skipbrot með viðeigandi skell.“

 

Já, ég vil lesa meira nýja viðskiptahætti...


Listin að mótmæla

Kamilla Guðmundsdóttir fór með fjögurra ára son sinn á mótmæli á Austurvelli um daginn. Sonurinn komst að þeirri niðurstöðu að mótmæli væru þegar fólk safnaðist saman til að heyrðist betur í þeim. Vefritsgrein dagsins fjallar um mótmæli: "Það má í raun segja að mótmæli séu list sem við Íslendingar höfum aldrei náð að tileinka okkur að fullu. Margir álíta að ef þeir mæti á mótmæli þá öðlist þeir stimpil sem róttækir aktívistar og séu einu skrefi frá því að ganga í kommúnu og hætta að baða sig. Mótmæli á Íslandi hafa því oft minnt meira á fámenna gjörninga heldur en háværar köfur frá samfélaginu."

Akkúrat! Ég vil lesa meira um af hverju við þurfum að berjast fyrir betri framtíð.


mbl.is Mótmælendur „sitja ekki aðgerðarlausir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband