Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
30.12.2008 | 13:19
Frjálshyggjunni er ekki treystandi fyrir ríkinu
Félagshyggjufólki er ekki treystandi fyrir skattpeningum! Í pistli dagsins skoðar Sverrir Bollason þessa fullyrðingu og er meðal annars ekki frá því að hann noti frjálshyggjuna sem innblástur öðru hvoru. Þessi prentsmiðja ætti í raun ekki að skipta sér af prentiðnaði, til þess eru mörg önnur fyrirtæki með öðru rekstrarsniði til þess betur fallin! Ímyndið ykkur móralinn á þeim vinnustað eftir slíka ræðu. Ímyndið ykkur svo móralinn ef þetta væri í raun eina framlag forstjórans til rekstursins. Sennilega er það ekki svo ólíkt því að starfa hjá ríkisstofnunum hér á landi undanfarin ár.
Já, ég lesa um sviðna jörð frjálshyggjumanna í ríkisrekstri ...
30.12.2008 | 13:15
Ísland - næstum því himnaríki?
30.12.2008 | 13:13
Sanngirni og virðing: Viðskiptafrasar næstu ára
Lausnin á efnahagsvanda okkar tíma felst í að gera ekki sömu mistökin aftur. Sverrir Bollason skrifar í grein dagsins um það hvernig íslenskt atvinnulíf eigi að taka til við endursköpun sína án þess að græðgin verði aftur látin ráða för: Bæði í pólitík og viðskiptum er oft talað um hádegisverðinn sem aldrei er ókeypis. Það þýðir að maður gerir ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn. Skilningur landsmanna á heilbrigðum samskiptum hefur verið brenglaður af því hugarfari að hægt sé að fá allt fyrir ekkert því merkilegt nokk, gekk það um tíma. Það tímabil er liðið og beið skipbrot með viðeigandi skell.
Já, ég vil lesa meira nýja viðskiptahætti...
15.12.2008 | 13:23
Listin að mótmæla
Kamilla Guðmundsdóttir fór með fjögurra ára son sinn á mótmæli á Austurvelli um daginn. Sonurinn komst að þeirri niðurstöðu að mótmæli væru þegar fólk safnaðist saman til að heyrðist betur í þeim. Vefritsgrein dagsins fjallar um mótmæli: "Það má í raun segja að mótmæli séu list sem við Íslendingar höfum aldrei náð að tileinka okkur að fullu. Margir álíta að ef þeir mæti á mótmæli þá öðlist þeir stimpil sem róttækir aktívistar og séu einu skrefi frá því að ganga í kommúnu og hætta að baða sig. Mótmæli á Íslandi hafa því oft minnt meira á fámenna gjörninga heldur en háværar köfur frá samfélaginu."
Akkúrat! Ég vil lesa meira um af hverju við þurfum að berjast fyrir betri framtíð.
Mótmælendur sitja ekki aðgerðarlausir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2008 | 11:50
Kynjaveröld kreppunnar
Karlar eru með 19,6% hærri laun en konur samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem kynnt var fyrir tveimur vikum. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir rekur í grein dagsins af hverju laun kvenna þurfa að hækka sem því nemur: Gera mætti að því skóna að launamunur kynjanna sé kominn til að vera þegar við siglum inn í tímabil kreppu á landinu öllu nema til róttækra aðgerða komi. Lilja benti á að viðkvæði ráðamanna væri oft þannig að alls ekki megi hækka laun kvennastétta því þá fari launaskrið af stað. Þetta er alþekkt afsökun fyrir því að hækka ekki laun kvennastétta.
Auðvitað við ég lesa um nauðsyn þess að gæta vel að launamunur kynjanna aukist ekki í kreppunni.
9.12.2008 | 14:04
Eiga kaup á vændi að vera refsiverð?
Vændi vekur alltaf upp sterk tilfinningaviðbrögð og umræðu í samfélaginu, og hefur umdeildasta umræðuefnið undanfarinn áratug verið hvort gera eigi kaup á vændi refsiverð. Hrafnhildur Kristinsdóttir ræðir vændi í pistli dagsins: Óumdeilt er að í kjölfar gildistöku laganna dró verulega úr sýnilegu vændi í Svíþjóð, þ.e. götuvændi, auk þess sem þeim körlum fækkaði, sem keyptu kynlífsþjónustu. Þá eru einnig fyrir hendi skýrar vísbendingar um að lögin hafi haft bein og jákvæð áhrif á mansal til Svíþjóðar og að Svíþjóð hafi nú ekki lengur aðdráttarafl fyrir þá sem skipuleggja slíka starfsemi.
Já! Ég vil lesa af hverju kaup á vændi eiga að vera refsiverð.
8.12.2008 | 12:11
Utan gátta
Vefritspenni dagsins, Jóhanna Katrín Magnúsdóttir, sá leikritið Utan gátta í Kassanum í Þjóðleikhúsinu um helgina og þótti aðstæðurnar um margt kunnuglegar: Morguninn eftir þegar ég settist niður með tebolla og blöðin þá rifjaðist þetta allt upp fyrir mér. Þetta er einmitt sama leikrit og stjórnvöld og Seðlabanki íslands hafa boðið almenningi upp á í síðustu viku. Á föstudaginn síðasta kom ég heim um kvöldið og þurfti virkilega að melta þau ummæli og fáránleikann sem kom frá stjórnvöldum í liðinni viku.
Lesa um Villu og Millu, Geir og Ingibjörgu Sólrúnu.
8.12.2008 | 12:08
Eru ráðamenn og verða ráðamenn?
Í sviptingum undanfarinna vikna hefur hrikt í stoðum samfélagsins. Erla Elíasdóttir bendir í grein dagsins á nauðsyn þess að skapa nú jafnréttismálum sess til framtíðar: Hefð er fyrir því að afsaka stráka og afskrifa heimskupör þeirra með því að þeir 'séu og verði strákar'; bojs vill bí bojs. Þetta hljómar voða krúttlega en heldur auðvitað ekki vatni í neinskonar rökræðu. Merkilegt nokk, þá finnst mér afsakanir ráðamanna á ástandinu og þaraðlútandi sinnuleysi vera á nokkurnveginn þessu plani. Eins og þau hafi hvorki vitað betur né átt að vita betur.
Ég vil lesa meira um jafnréttið og kreppuna.
5.12.2008 | 16:02
„Nýtt“ Ísland á úreltum gildum
Vefritspenni dagsins, Dagný Ósk Aradóttir, kallar eftir því að ríkisstjórnin taki ábyrgð og viðurkenni að mistök hafi verið gerð við stjórnun landsins: Ef það er eitthvað sem einkennir ráðmenn þessa dagana þá er það óbilandi trú á eigin ágæti og gríðarlegur hroki. Auðvitað bera stjórnvöld ábyrgð. Það gera líka ýmsir aðrir, einhverjir bankakallar, eftirlitsstofnanir og fleiri. Ég skal meira að segja samþykkja að óviðráðanlegar ytri aðstæður hafi haft einhver áhrif líka. Almenningur ber hins vegar ekki ábyrgð, en henni er samt klínt á okkur í formi fyrirsjáanlegra skattahækkana og skertra lífskjara.
4.12.2008 | 12:08
Tími risaeðlanna ætti að vera löngu liðinn
Átök milli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, í umræðum um tillögu stjórnarandstöðunnar um vantraust á ríkisstjórnina hafa vakið mikla athygli. Ásþór Sævar Ásþórsson ræðir í grein dagsins hegðun risaeðlanna í íslenskum stjórnmálum: Stjórnmálaumræða milli þessara risaeðla hefur oft einkennst af miklum sleggjum, stundum kímni, en oftast reiði út í hvorn annan sem birtist stundum í ómálefnalegum tilburðum. Auk dæmisins hérna að ofan má nefna atvikið snemma á síðasta áratug þar sem stjórnarandsæðingurinn Ólafur Ragnar Grímsson lýsti Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, nánast sem holdgervingi skítlegs eðlis og atvikið þar sem Davíð Oddson kallaði Samfylkinguna afturhalds-kommatittsflokk.
Lesa meira um Davíð, Steingrím, Ólaf Ragnar og fleiri risaeðlur.
Hitti Davíð ekki í tæpt ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006