Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
4.6.2007 | 09:37
Heimavinnandi femínisti?
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir á pistil dagsins í dag. Hún er femínisti og vill þar af leiðandi banna konum að vinna heima, er það ekki? Það hefði ábyggilega haft sömu áhrif á mig ef hún hefði staðið upp í miðri kennslustund, gengið að mér og hellt yfir mig ísköldu vatni í lítravís. Ég var furðulostin. Kennarinn var svo fljótur að drífa glærusýninguna sína áfram að enginn fékk rúm til að leiðrétta, já ég leyfi mér að segja leiðrétta, þessa fullyrðingu samnemanda míns, segir Steinunn meðal annars.
3.6.2007 | 23:03
Kraumandi Kúba
Kúba er ekki bara paradísareyja til að fara á og drekka mojito og dansa salsa. Hún er eitt heitasta deiluefnið í stjórnmálaumræðu. Í helgarumfjöllun vikunnar deilir Eva Bjarnadóttir ferðasögu með lesendum, en hún er nýkomin heim frá Kúbu. Eva lýsir því sem fyrir augu bar í þessu sérstaka samfélagi og veltir fyrir sér spurningunni um hvað manni á eiginlega að finnast um stjórnmálin á Kúbu. Á meðan Julio leiðir okkur í gegnum dalinn, sýnir okkur náttúruna og fræðir okkur um félagslegar og menningarlegar staðreyndir um tóbaksbændur kemst hann ekki undan því að ræða byltinguna og ástand landsins, þótt hann strangt til tekið megi ekki ræða það. Julio vinnur nefnilega fyrir ríkið líkt og allir aðrir, jafnvel salsakennarinn er ríkisstarfsmaður.
1.6.2007 | 13:28
Af yfirvofandi dauða almenningssamgangna
Í grein dagsins gagnrýnir Atli Bollason harðlega þær grófu þjónustuskerðingar sem eru að verða á Strætó bs. Honum segir svo hugur að verið sé að velja einkabílinn fyrir Reykvíkinga og að hann sé augljóslega í forgrunni í framtíðarborgarskipulagi Reykjavíkur þar sem stofnbrautir, bílastæði og mislæg gatnamót verða til á kostnað mannlífsins. Í greininni segir m.a: ég get ekki séð fyrir mér að nokkur maður geti fært sannfærandi rök fyrir þeim skemmdarverkum sem verið er að vinna á almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 123999
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006