Loksins var hlustað á þjóðina

Þegar Dagný Aradóttir skrifaði grein dagsins voru eiginlega engir ráðherrar á Íslandi. Að minnsta kosti enginn með pólitískt vald. Verið var að mynda nýja ríkisstjórn eftir sögulega mótmælaöldu á götum stærstu bæja landsins. Það hlustuðu þó ekki allir á raddir fólksins: „Sjálfstæðismenn hefðu fengið mörg prik í kladdann ef þeir hefðu drifið sig í að losa sig við hann áður en stjórninni var slitið. Geir hefur sjálfur gefið það út að vegna veikinda sinna muni hann stíga til hliðar frá og með landsfundi og segja skilið við pólitík. Með því að hreinsa til í Seðlabankanum hefði hann því ekki verið að eyðileggja einhverja pólitíska framtíð sína. Hvað á þetta að þýða, af hverju er ekki löngu búið að láta Davíð fara?“

 

Lesa meira um heyrnaleysi Sjálfstæðisflokksins ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Eftir því sem maður heyrði í dag þá mun það vera ennþá erfitt að losa sig við Davíð sökum reglum sem vernda embætismenn í rauðan dauðan. Við verðum bara taka mótmælaspjöldin upp aftur og gefa ekki frið fyrr en...

Úrsúla Jünemann, 28.1.2009 kl. 16:19

2 identicon

Þjóðin vill losna við samfylkinguna úr ríkisstjórn. Rétt rúmlega sextán prósent fylgi flokksins ættu að vera skilaboð um hug þjóðarinnar. Þjóðin vill ekki samfylkinguna í stjórn, ekkert flóknara en það. Jóhanna er reyndar fín kelling en við viljum kosningar stax og burt með samfylkinguna. Landið skorar á Jóhönnu að stofna Þjóðvaka aftur og koma sér frá spillingunni í samfylkingunni.

Landið (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband