Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Fjörutíu hrefnur eru ekki þess virði

 


 

Sjávarútvegsráðherra hefur veitt leyfi til veiða á 40 hrefnum á þessu fiskveiðiári. Í grein dagsins fjallar Anna Tryggvadóttir um ákvörðun ráðherra, sem er reiðarslag fyrir andstæðinga hvalveiða. Segir meðal annars: ,,Andstæðingar hvalveiða eiga sér sterka fylgismenn erlendis. Á þessu ári einu hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ítrekað andstöðu við hvalveiðar Japana og hópur þingmanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings lagt fram ályktunartillögu gegn hvalveiðum, svo einhverjir séu nefndir. Þannig er fullljóst og hefur verið lengi að andstaða við hvalveiðar er ekki einkamál náttúrverndarhópa, heldur mjög útbreidd skoðun fólks í vestrænum ríkjum.” Lesa »


mbl.is Veiðimenn ekki farnir af stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lægri námskröfur til fulltrúa stúdenta

AlþingiÍ grein dagsins veltir Agnar Burgess upp mikilvægi þess að slakað sé á kröfum til stúdenta sem gegna forystuhlutverki í hagsmunahreyfingum þeirra. Segir meðal annars í greininni: ,,Þar með eru möguleikar þeirra á vinnumarkaði að námi loknu skertir vegna vinnu þeirra í þágu stúdenta og menntunar á Íslandi. Vegna þessa þykir mér eðlilegt að lækka lágmarkseinkunn fulltrúa nemenda á lokaprófum og gefa að auki eftir í verkefnaskilum og mætingu í verklegum tímum þar sem við á.”

Já, ég vil lesa meira af þessari kaldhæðnu grein!


mbl.is Hrefnukvóti gefinn út í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB og hræddir stjórnmálamenn

esbbolti.jpgEvrópa og Evrópusambandið hefur verið þó nokkuð í umræðunni á þessum síðustu og verstu tímum, stjórnmálamenn hafa að mestu skipst í hefðbundnar fylkingar. Dagbjört Hákonardóttir fjallar um Evrópu, Evrópusambandið og  þá furðulegu staðreynd að íslenskir stjórnmálamenn séu svona langt á eftir almenningi í áhuga á aðildarviðræðum. “Eitt atriði skilur þó á milli Íslands og flestra annarra Evrópuþjóða. Evrópuumræðan hér á landi hefur ávallt borið þess merki að það séu stjórnmálamennirnir sem aftri allri hugsanlegri framþróun á sviði umræðu um hugsanlegar aðildarviðræður við ESB. Í öðrum ríkjum hefur þessu verið þveröfugt farið – stjórnmálamennirnir eru jákvæðari gagnvart ESB, á meðan almenningur er fullur efasemda. Íslendingar hafa nú tekið afdráttarlausa afstöðu gegn ástæðulausu aðgerðarleysi alþingismannanna, og samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er afgerandi meirihluti þjóðarinnar hlynntur aðildarviðræðum.”

Ég vil svo sannarlega lesa meira um Evrópusambandið, framtíðina og hrædda stjórnmálamenn!


mbl.is Skiptasamningar gilda út árið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

“Og hvað heldurðu að séu margar kaloríur í þessu?”

MegrunaráráttaÍ grein dagsins fjallar Kristín Laufey Steinadóttir um óheilbrigða sýn eðlilegs fólks á holdafar og útlit. Segir meðal annars í greininni: ,,Þá spurðu kvennsurnar hvað ég héldi að væru margar kaloríur í tortillu-vefjunni og ósjálfrátt var ég farin að afsaka að hún væri nú ekki einu sinni með sósu. Þangað til ég rankaði við mér, brosti og sagði að “annars gæti mér ekki verið meira sama!” Það er nú reyndar kannski svolítið sterkt til orða tekið þar sem mér er nú ekki alveg sama hvað ég læt ofan í mig, en hins vegar finnst mér alveg óþarfi að aðrir séu að velta sér upp úr því.”

Já, ég vil lesa meira um kalóríumaníur og heilsufars öfgar!


mbl.is Ákærð fyrir aðild að MySpace-gabbi sem leiddi til sjálfsvígs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða breytingar?

althingi.jpgBreytingar á eftirlaunalögum fyrir æðstu embættismenn ríkisins eru mikið í umræðunni þessa daganna. Í Vefritsgrein dagsins fjallar Stígur Helgason um þessar breytingar og þá miklu óánægju sem hefur verið með þessi alræmdu lög. Hann veltir m.a. fyrir sér hversu langt væntanlegar breytignar muni ganga. “Það hefur því enginn flokkur hefur hreinan skjöld í málinu. Frumvarpið var lagt fram af þingmönnum allra flokka, með samþykki allra formanna. Raunar var enginn flokksformanna nema Davíð Oddsson við þinghald þegar lögin voru samþykkt. Skyldu hinir hafa skammast sín? “

Að sjálfsögðu vil ég lesa meira um sjálftöku, sérhagsmuni og firringu!


mbl.is Boða fólk á Austurvöll til að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að lækna sjúkdóminn en drepa sjúklinginn

islam.jpgSíðasta grein Stefáns Boga Sveinsonar á Vefritinu, “Þeir eru að berja samlanda sína!”, fjallaði um þjóðerniskennd og birtingamyndir hennar og vakti greinin mikla athygli. Í grein dagsins heldur Stefán áfram þessum hugleiðingum sínum og beinir penna sínum að fjölmenningunni og andstæðngum hennar. “Auðvitað á engum að líðast að brjóta lög, en ef það gerist í vestrænum samfélögum þá er farið með slík mál eftir ákveðnum leikreglum og þær reglur eru þær sömu fyrir alla. Allir eiga að vera jafnir fyrir lögunum og ef að hinn algengi frasi að það verði að taka á málefnum innflytjenda felur í sér að þeir standi ekki jafnfætis öðrum fyrir lögunum þá er það í sjálfu sér alvarlegt mein á samfélaginu sem við viljum verja.”

Já! Ég vil svo sannarlega lesa meira um vestrænar grunnreglur, Danmörk og Guantanamo! 


mbl.is Ísraelar setja skilyrði um vopnahlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipuheildir próletera

proleter.jpgHlutverk þrýstihópa í samfélaginu er mörgum Íslendingum hugleikið um þessar mundir og hafa Vefritspennar sínar skoðanir á því. Sverrir Bollason skrifar Vefritspistil dagsins um þetta hlutverk, hvernig lýðræðið virkar á Íslandi og hvernig félagshyggjuöflin hafa nýtt sér það til framdráttar. “Verkalýðsfélögin eru í okkar samfélagi lang sterkasti þrýstihópurinn sem um getur. Það er vel, því þeir eru í senn fulltrúar fjöldans, þeirra veikustu í samningaviðræðum og þeirra sem ekki hafa getað komið að samningaborðinu sjálfir, t.d. ef þeir staldra stutt við í starfi. Enginn félagshyggjumaður getur því mótmælt gildi þess að hafa öfluga þrýstihópa að störfum í hinu pólitíska kerfi. Með skipulögðum hætti er komið á milliliðalausri tengingu launafólks og ríkisvalds.”

Já. Ég vil lesa meira um vörubílstjóra, lýðræðið og verkalýðshreyfinguna!


mbl.is Flugmenn semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipuheildir próletera

proleter.jpgHlutverk þrýstihópa í samfélaginu er mörgum Íslendingum hugleikið um þessar mundir og hafa Vefritspennar sínar skoðanir á því. Sverrir Bollason skrifar Vefritspistil dagsins um þetta hlutverk, hvernig lýðræðið virkar á Íslandi og hvernig félagshyggjuöflin hafa nýtt sér það til framdráttar. “Verkalýðsfélögin eru í okkar samfélagi lang sterkasti þrýstihópurinn sem um getur. Það er vel, því þeir eru í senn fulltrúar fjöldans, þeirra veikustu í samningaviðræðum og þeirra sem ekki hafa getað komið að samningaborðinu sjálfir, t.d. ef þeir staldra stutt við í starfi. Enginn félagshyggjumaður getur því mótmælt gildi þess að hafa öfluga þrýstihópa að störfum í hinu pólitíska kerfi. Með skipulögðum hætti er komið á milliliðalausri tengingu launafólks og ríkisvalds.”

Já. Ég vil lesa meira um vörubílstjóra, lýðræðið og verkalýðshreyfinguna!


mbl.is Mótmæli bílstjóra röskuðu samræmdu prófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launaleynd er lögbrot!

untitledNýlega voru samþykkt ný janfréttislög sem Guðlaugur Kr. Jörundsson bendir á að hafi lítið farið fyrir.  Guðlaugur færir hins vegar fyrir því rök að jafnréttislögin nýju séu talsverð bylting og til hins betra. Í greininni segir hann m.a: Það er ekki þitt einkamál hvað fyrirtæki greiðir þér í laun. Það er mál allra starfsmanna fyrirtækisins, eigenda fyrirtækisins og viðskiptavina fyrirtækisins. Það verður alltaf að vera hægt að réttlæta upphæð þinna launa. Ef launin þín eru réttlát þá er ekkert að því að opinbera launin.

Lesa meira....


mbl.is Ný velferðar- og vinnumálastofnun sett á laggirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gatið á tjaldinu

gasid.jpgUmmæli Láru Ómarsdóttur um sviðsetningu á eggjakasti vöktu mikla athygli í fjölmiðlaumfjöllun um óeirðinar við Rauðavatn. Atli Bollason hefur velt hlutverki og stöðu fjölmiðla fyrir sér í framhaldi af því og skrifar hugleiðingar sínar um málið í Vefritsgrein dagsins. “Fyrstu viðbrögð Láru við því þegar hún komst að því að hún var þá þegar „live“ þegar hún sagði þetta var að lýsa því yfir að um grín hefði verið að ræða. Bloggarar brugðust við á tvo vegu; annað hvort trúðu þeir því, eða þeir trúðu því ekki og dæmdu Láru harkalega fyrir að reyna sviðsetningu fréttar. Bæði viðbrögðin eru að mínu viti barnaleg og fela í sér nokkra óskhyggju.”

Já, ég vil lesa meira um eggjakast, Gordon Brown og sviðsetningar!


mbl.is Eftirlitsmyndavélar virka ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband