Nú er hart í Árni

arnimatt.jpgUmboðsmaður Alþingis segir í áliti sínu að Árni Mathiesen hafi ekki valið hæfasta umsækjandann í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Í grein dagsins spyr Steindór Grétar Jónsson hvort þingmenn Samfylkingarinnar sætti sig við að Árni sitji áfram í ráðherrastól í umboði þeirra. „ Allir ættu nú að geta sammælst um að það var rangt af Árna að skipa Þorstein í starfið, annarlegir hagsmunir hafi þar augljóslega ráðið för og að svona pólitískar skipanir ættu ekki að líðast í frjálsu og opnu lýðræðisríki. Dómarar hafa mikil völd yfir fólki, fjármunum þess, frelsi og framtíð. Það er því sjálfsögð krafa að þeir hæfustu gegni þessum þýðingarmiklu embættum.“

 

Ég treysti Árna Matt til engra verka, en vil samt lesa meira...


mbl.is Mótmælt við Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lýðræði er ekki við líði hér á landi, það hafa atburðir undanfarinna vikna og mánaða fært okkur sanninn um.

Jóhann Elíasson, 13.1.2009 kl. 11:05

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þetta er svo mikið áfellisdóm í garð Árna að hann getur ekki annað en að standa upp úr stólnum ef hann hefur bara vott af heiðurstilfinningu í sér.

Úrsúla Jünemann, 13.1.2009 kl. 14:54

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég heyrði ekki betur en að Ingbjörg Sólrún tæki upp ákveðna vörn fyrir Árna í sjónvarpsviðtali og tæki ekki í mál að hann víki.

Ómar Ragnarsson, 13.1.2009 kl. 15:14

4 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Stendur Þorsteinn Davíðsson sig ekki vel sem Héraðsdómari.? Ég hef nefnilega ekki heyrt neitt annað . hverslags læti eru þetta einhver tíman hefur nú verið veitt feitara embætti, hefur nokkuð sannast á Þorsteinn að hann sé vel hæfur í þetta embætti?.

Ragnar Gunnlaugsson, 13.1.2009 kl. 15:38

5 identicon

Ragnar, það kemur málinu ekkert við hvernig Þorsteinn hefur staðið sig heldur hvernig Árni hefur staðið sig.  Um það snýst málið.

Einar (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 08:20

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég tek þetta fyrir á síðunni minni í dag. Það er ómaklega vegið að Árna.

Sigurður Þórðarson, 14.1.2009 kl. 10:32

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þorsteinn var metinn hæfur og hann hefur staðið undir því. Árni stóð sig vel.

Ragnhildur Kolka, 14.1.2009 kl. 19:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband