25.10.2007 | 09:00
Guðmundur, Guðmundur og Andri
Ráðstefnur eru líklega sjaldnast mjög dramatískar og í verstu tilvikum gleymist í mesta lagi einn glærupakki heima. Valgerður Halldórsdóttir hefur þó frá óvenjulegri ráðstefnu á vegum Landsvirkjunar að segja þar sem kemur fyrir ræða Andra Snæs Magnasonar og óvænt uppsögn: Andri lét þetta ekki slá sig út af laginu og greip það ráð að þýða jafn óðum ásakanirnar. Hes saying what I am saying is a bullshit Salurinn ók sér vandræðalega í sætum sínum þegar karpyrðin héldu áfram. Án rökstuðnings við yfirlýsingar sínar stormaði svo Guðmundur á dyr með hurðaskellum með þeim orðum að hann sæti ekki undir svona vitleysu.
Lesa meira um rithöfund og dramatíska ráðstefnu....
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Athugasemdir
Þegar rætt er um málefni tengd stóriðju hefur það hent Andra Snæ að villast af réttri leið. Hann hefur t.d. gefið lítið fyrir vel launuð störf sem þar skapast og benti á sem röksemd að þeir sem misstu störf þegar Keflavíkurherstöðin lokaði fengju atvinnu annars staðar. Það hefur ekki reynst rétt.
Tryggvi L. Skjaldarson, 25.10.2007 kl. 10:32
En Tryggvi, það var ekkert verið að ræða um það í stórmerkilegri frásögn Valgerðar af ráðstefnunni, heldur þá staðreynd að fundarstjóri telur sig þurfa að segja af sér vegna þess að Andri Snær bendir á það sem allir vita: Kárahnjúkavirkjun hefur seinkað.
Kristján B. Jónasson, 25.10.2007 kl. 14:02
Þetta er í raun sorgleg saga; fundarstjóri segir af sér fyrir það að hafa fengið frummælanda sem hreyfir við fundargestum og svarar frammíköllum - hann segir ekki af sér fyrir að hafa ekki getað þaggað niður í manni sem var að gjamma utan úr sal!
Guðrún Helgadóttir, 25.10.2007 kl. 14:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.