Lögleiðum pókermót

poker-chipsFyrir mánuði síðan var fyrsta opinbera pókermótið á Íslandi stöðvað af lögreglu. Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um pókerspilamennsku, vinsælasta afbrigði pókers og hvort ekki sé rétt að leyfa keppnispóker með því fyrirkomulagi sem var á fyrrgreindu pókermóti 16. júní síðastliðinn. Segir meðal annars í greininni: ,,Hins vegar er hægt að spila keppnispóker – það er að segja, pókermót þar sem spilarar greiða ákveðið þátttökugjald og eiga þess síðan kost að vinna peningaverðlaun. Spilapeningarnir sem keppendur notast við hafa þá ekkert eiginlegt gildi fyrir utan mótið, heldur eru einungis notaðir til að mæla árangur keppenda og ákvarða niðurröðun þeirra í sæti. Slíkt fyrirkomulag þekkist úr mörgum öðrum íþróttum og spilum, án þess að það þyki vera sérstaklega varhugavert.”

Ég vil lesa meira um póker!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Hjartanlega sammála. Það sem er haft ólöglegt elur af sér frekari undirheima og glæpastarfsemi en það sem er haft á yfirborðinu.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 17.7.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband