Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.4.2008 | 13:19
Klórað í bakkann
Tvær yfirlýsingar voru nýlega sendar út í kjölfar atburða í mótmælum vörubílstjóra. Eva Bjarnadóttir veltir fyrir sér atburðunum sem urðu til þess að annar aðilinn missti stjórn á skapi sínu og hinn missti vinnuna. Ekki ósvipuð atburðarás varð við ráðhús Reykjavíkur í janúar. Þegar boðuð mótmæli áttu að vera hafin var fátt að gerast fyrir utan ráðhúsið. Mótmælendur höfðu komið sér fyrir inni í húsinu enda vont veður og fólk stóð þar inni þögult og grafalvarlegt. Eitthvað þótti þetta óáhugavert sjónvarpsefni fyrir fréttastofuna sem hafði dröslað öllu sínu hafurtaski niður í bæ. Fréttamaðurinn skammaðist í þeim sem honum þótti bera ábyrgð á samkomunni og bað um að safnað yrði saman hópi fólks fyrir utan húsið sem væru með almennileg mótmæli fyrir myndavélarnar. Og það var gert.
Lesa meira um örvinglaða vörubílstjóra og fréttaleikstjórn ...
![]() |
Missti stjórn á skapi sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2008 | 10:52
Lítið um val í lýðræðisríki
Í grein dagsins fjallar Hrafn Stefánsson um bandaríska flokkakerfið og hvernig stóru flokkarnir tveir, Repúblikanar og Demókratar koma í veg fyrir að minni flokkar nái hylli almennings: Flokkarnir hafa nálgast hvor annan í stefnu síðustu ár og er munurinn sáralítill í dag. Málefni eins og afstaðan til fóstureyðinga og dauðarefsinga skilja flokkana helst að þar sem Demókratar eru frjálslyndari og Repúblikanar íhaldssamari. Þó ber að hafa í huga að einungis 70% þingmanna þessara tveggja flokka fylgja flokkslínunum á þingi og eiga það til að kjósa þvert á stefnu síns flokks.
Ég vil lesa meira um bandarísk stjórnmál!
23.4.2008 | 08:27
Mánaðarlegar greiðslur námslána, af hverju ekki?
22.4.2008 | 09:43
Guantanamó…já, það er ennþá í gangi!
Í grein dagsins fjallar Kári Hólmar Ragnarsson um fangelsið í Guantanamó á Kúbu: Í stuttu máli hélt þessi lagalegi rökstuðningur ekki vatni (vatni? Water-boarding?). Þar var reynt af veikum mætti að útskýra að pyntingar væru í lagi af því að þær færu fram á Kúbu (RANGT: hæstiréttur bandaríkjanna sagði í Rasul v Bush að pyntingasamningur SÞ frá 1984 ætti við og Alþjóðadómstóllinn sagði að mannréttindasamningar ættu við utan eiginlegs landsvæðis ríkja í Palestinian Wall case), eða að þetta væru ekki alvöru pyntingar, af því að þær leiddu ekki til líffæraskemmda eða dauða (RANGT: mannréttindanefnd SÞ og sérfræðingar SÞ um pyntingar hafa hafnað þessu enda er þetta fullkomlega glórulaust
bara pyntingar ef maður deyr?).
Ég vil lesa meira um Guantanamó og pyntingar!
![]() |
Clinton hótar Írönum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2008 | 17:47
Dómsdagsloddarinn, fagnaðarerindið og umhverfisvernd gegn náttúruvernd
Í grein dagsins fjallar Halldóra Þórsdóttir m.a. um Al Gore, náttúruverndarsinna og umhverfisverndarsinna. Gore var nýlega fenginn til að breiða út fagnaðarerindi sitt á fyrirlestri í Háskólabíói og var mikið rætt um komu hans í hérlendum fjölmiðlum. Minna bar á umfjöllun um hvað beinlínis fór fram á fyrirlestrinum, sem er ekki að undra í ljósi þeirra hindrana sem voru lagðar á fjölmiðla í þeim efnum. Þannig voru öll upptökutæki fjölmiðla stranglega bönnuð í salnum, hvort sem var hljóð eða mynd, og auk þess voru stífar skorður settar á hvernig mætti greina frá því sem fram kom.
![]() |
Stofnandi Saving Iceland ákærður fyrir eignaspjöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2008 | 15:55
Pólitík smámunanna
Hillary Clinton og Barack Obama mættust í sjónvarpssal hjá ABC sjónvarpsstöðinni á miðvikudag í 21. sjónvarpskappræðum forsetaframbjóðenda demókrata. Þar sem íbúar Pennsylvaníuríkis ganga að kjörklefunum á þriðjudag var mikið í húfi. Steindór Grétar Jónsson fjallar um þann farsa sem þessar kappræður voru og spyr líka af hverju svona miklu harðar er gengið á frambjóðendum Demókrata en Repúblikana. Er það tilviljun að frambjóðendur félagshyggjuaflanna þurfa sífellt að sæta gagnrýni fjölmiðlamanna sem sótt er beint í orðaforða spunameistara hægrimanna, á meðan hægrimenn hljóta litla sem enga gagnrýni fyrir sömu sakir?
Ég vil lesa um hörmulegar sjónvarpskappræður og silkihanska fjölmiðlanna!
![]() |
Obama heillar ungu kynslóðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2008 | 14:20
Pólitík smámunanna
Hillary Clinton og Barack Obama mættust í sjónvarpssal hjá ABC sjónvarpsstöðinni á miðvikudag í 21. sjónvarpskappræðum forsetaframbjóðenda demókrata. Þar sem íbúar Pennsylvaníuríkis ganga að kjörklefunum á þriðjudag var mikið í húfi. Steindór Grétar Jónsson fjallar um þann farsa sem þessar kappræður voru og spyr líka af hverju svona miklu harðar er gengið á frambjóðendum Demókrata en Repúblikana. Er það tilviljun að frambjóðendur félagshyggjuaflanna þurfa sífellt að sæta gagnrýni fjölmiðlamanna sem sótt er beint í orðaforða spunameistara hægrimanna, á meðan hægrimenn hljóta litla sem enga gagnrýni fyrir sömu sakir?
Ég vil lesa um hörmulegar sjónvarpskappræður og silkihanska fjölmiðlanna!
![]() |
Baráttan harðnar hjá Clinton og Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2008 | 12:20
Samgönguleið eða hobbýleið
Á tímum trukkabílstjóramótmæla og samúðaraðgerða hobbýklúbbsins 4X4 getur verið erfitt að vera venjulegur hjólreiðamaður í vesturbænum. Styrmir Goðason fjallar um aðstæður hjólreiðamanna í bílaborginni Reykjavík og veltir fyrir sér af hverju sumir hobbýklúbbar mega mótmæla gengisbreytingum en aðrir ekki. Ég veit ekki betur en að við það að krónan veiktist þá hafi hobbý-kostnaður hækkað hjá flestum. Flestar hobbý-vörur eru jú innfluttar og græjurnar hafa því tekið á sig gengisfallið, alveg eins og með eldsneytið.
Ég vil lesa meira um hjólreiðar, gengisbreytingar og hobbý!
![]() |
Bílstjórar stofnuðu hagsmunasamtök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2008 | 09:55
Lærum af mistökum annarra
Síðustu daga hefur umræðan um upptöku skólagjalda í opinberum háskólum verið áberandi, í fjölmiðlum og á bloggsíðum samfélagsspekúlanta. Nýr Vefritspenni, Alma Joensen, fjallar um reynslu nágranna þjóða okkar af upptöku skólgjalda og í hve litlu samræmi sú reynsla er við áróður skólagjaldasinna á Íslandi í dag. Í þeim löndum sem tekið hafa upp skólagjöld, fullyrða stúdentahreyfingar að skólagjöld séu aðeins enn einn steinn í götu þeirra sem mæta misrétti í háskólakerfinu eða búa við slæmar félags- og efnahagslegar aðstæður. Þeir örfáu úr þessum hóp, sem þrátt fyrir slagandi áhrif skólagjalda skrá sig í háskóla, byggja námsval sitt nú nær undantekningarlaust á arðbærni námsins en ekki á áhuga eða hæfileikum.
Já! Ég vil svo sannarlega lesa meira um slæma reynslu annarra landa af skólagjöldum!
![]() |
Vanskil ekki minni frá árinu 2000 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006