Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
31.1.2007 | 10:06
Fýkur yfir hæðir
Jarðvegseyðing og rof er einn stærsti umhverfisvandi Íslands og á sér raunar enga hliðstæðu í löndum með svipað loftslag. Í grein dagsins beinir Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir augum að ástæðum þess og hvernig best sé að takast á við vandann: Enn er beitt á svæðum sem illa eru farin af rofi og í raun ætti sjálfbær nýting lands að vera forsenda stuðnings við sauðfjárbúskap. Það verður að efla leiðir til að koma í veg fyrir akstur utan vega. Landgræðsla verður að auki ávallt að vera unnin með tilliti til náttúruverndarsjónarmiða, landlagsverndar og líffræðilegrar fjölbreytni.
30.1.2007 | 10:57
Hvert fór virðisaukinn?
Í grein dagsins fjallar Hrafn Stefánsson um fyrirhugaða lækkun virðisaukaskatts, sem mun síður en svo verða eins áhrifamikil og vonir stóðu til. Segir meðal annars í greininni: Veitinga- og matsölustaðir munu heldur ekki lækka, eins og halda mætti í fyrstu, úr 24,5% í 7%. Hingað til hafa veitinga- og matsölustaðir keypt matvöruna inn á 14% og selt hana á 24,5% virðisauka. Mismuninn þarna á milli hefur ríkið svo endurgreitt þessum stöðum. Með því að einfalda skattkerfið og færa bæði virðisauka á matvöru og veitingaþjónustu í 7% verða þessir staðir af tekjum sínum vegna endurgreiðslu frá ríkinu. Því munu þeir þurfa að hækka verð sín til að vinna þessar tekjur aftur. Lesa meira ....
29.1.2007 | 11:47
Málið snýst um jafnrétti, gildi og góða stjórnun
28.1.2007 | 14:51
Verkefni Grósku ekki lokið
26.1.2007 | 09:31
Ójöfnuður stendur í stað... eða hvað?
Ef að Vefþjóðviljinn og aðrir sem hampað hafa ,,byltingarkenndum niðurstöðum Ragnars hefðu haft fyrir því að kynna sér málflutning Stefáns ögn ítarlegar, hefðu þeir hinir sömu fljótt séð að niðurstöður Ragnars renna í rauninni að miklu leyti stoðum undir fyrri niðurstöður Stefáns.
25.1.2007 | 00:44
Ekki sama hver á í hlut
Þar sem ekki þarf að beita ofbeldi eða hótun um ofbeldi í þessum tilvikum lítur löggjafinn svo á að ekki sé um nauðgun að ræða. Með öðrum orðum þá er ekki ákært fyrir nauðgun ef andleg eða líkamleg fötlun er notuð til að ná fram samræði. Í þessum tilvikum er horft á brotið sem misneytingu. Lesa meira.
24.1.2007 | 09:15
Sannleikurinn um íhaldssamt kristið fólk
Íhaldssamt kristið fólk í Bandaríkjunum er eitthvað sem nær allir hrista hausinn yfir. Vandamálið er hinsvegar að það sem menn hrista höfuðið yfir er í raun ekki til. Myndin sem er teiknuð upp er ekki fullkomlega sönn, eða í það minnsta ákaflega afskræmd.
23.1.2007 | 12:20
Hinir arflausu óvíkingar
Forsíðan olli fjaðrafoki sérstaklega vegna umræðu um það að svört kona í íslenskum búningi gæti mögulega verið óvirðing við búninginn á einhvern hátt. Hann skoðar þetta út frá við og hinir orðræðunni. Þar sem að búningurinn virðist augljóslega vera eign okkar hlýst sú óvirðing sem felst í því að að hinir fari í hann af því að það rjúfi mörkin á milli okkar og hinna.
22.1.2007 | 09:20
Aukið lýðræði í vor eða enn eitt valdaránið?
Í borgarstjórnarkosningunum í vor fékk Björn Ingi Hrafnsson og Framsóknarflokkurinn samtals 4056 atkvæði eða 6,3% og einn mann af fimmtán í borgarstjórn. Þessi sami flokkur á nú mann eða formann í öllum nefndum borgarinnar, formann borgarráðs og að auki fékk Björn Ingi, á einhvern undraverðan hátt, skrifstofu inn í Ráðhúsi. Hvað ætli það hafi kostað? Er Bingi virkilega svona upptekinn?
21.1.2007 | 13:36
Hefðin, þorrablótin og pó-mó
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006