4.12.2008 | 12:08
Tími risaeðlanna ætti að vera löngu liðinn
Átök milli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, í umræðum um tillögu stjórnarandstöðunnar um vantraust á ríkisstjórnina hafa vakið mikla athygli. Ásþór Sævar Ásþórsson ræðir í grein dagsins hegðun risaeðlanna í íslenskum stjórnmálum: Stjórnmálaumræða milli þessara risaeðla hefur oft einkennst af miklum sleggjum, stundum kímni, en oftast reiði út í hvorn annan sem birtist stundum í ómálefnalegum tilburðum. Auk dæmisins hérna að ofan má nefna atvikið snemma á síðasta áratug þar sem stjórnarandsæðingurinn Ólafur Ragnar Grímsson lýsti Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, nánast sem holdgervingi skítlegs eðlis og atvikið þar sem Davíð Oddson kallaði Samfylkinguna afturhalds-kommatittsflokk.
Lesa meira um Davíð, Steingrím, Ólaf Ragnar og fleiri risaeðlur.
Hitti Davíð ekki í tæpt ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:58 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 124178
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Athugasemdir
"... að íslensk stjórnmálaumræða einkennist enn af þessu meini"
Eitt dæmi á þessu þingi, í allri þeirri upplausn verið hefur í þjóðfélaginu, réttlætir ekki það að segja að stjórnmálaumræðan einkennist af þessu. Þetta er bara undantekning en ekki einkenni. Og varla er heldur að tala um mein.
Vissulega eiga menn að viðhafa almenna mannasiði og sýna kurteisi. Ég myndi frekar hafa áhyggjur af nýliðunum. Að það skorti unga kröftuga stjórnmálamenn og konur, sem láta til sín taka. Ekki síst í ræðustól.
Haraldur Hansson, 4.12.2008 kl. 19:59
Tek undir þessa gagnrýni á skort á mannasiðum. Tel að Steingrímur og Ögmundur hafi skotið sig í fótinn með fram í köllum og reiði. Með framkomu þeirra datt botninn úr kröfunni um kosningar í bili. Það er hægt að "láta til sín taka" með öðrum hætti en að umverpast í einhver reið skrímsli. Það er líka hægt að sannfæra okkur um að ræðumaður viti um góða leið út úr vanda á sjarmerandi og útgeislandi hátt. Þetta hljómar væmið af því að við erum föst í gífuryrðum og sankassaleik.
Gunnlaugur B Ólafsson, 5.12.2008 kl. 09:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.