20.5.2008 | 10:31
Fjörutíu hrefnur eru ekki þess virði
Sjávarútvegsráðherra hefur veitt leyfi til veiða á 40 hrefnum á þessu fiskveiðiári. Í grein dagsins fjallar Anna Tryggvadóttir um ákvörðun ráðherra, sem er reiðarslag fyrir andstæðinga hvalveiða. Segir meðal annars: ,,Andstæðingar hvalveiða eiga sér sterka fylgismenn erlendis. Á þessu ári einu hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ítrekað andstöðu við hvalveiðar Japana og hópur þingmanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings lagt fram ályktunartillögu gegn hvalveiðum, svo einhverjir séu nefndir. Þannig er fullljóst og hefur verið lengi að andstaða við hvalveiðar er ekki einkamál náttúrverndarhópa, heldur mjög útbreidd skoðun fólks í vestrænum ríkjum. Lesa »
Veiðimenn ekki farnir af stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:59 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 124178
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Athugasemdir
Oft hefur verið frestað brottför á skipum sem ég hef verið á, af mismunandi ástæðum, án þess að fjölmiðlar fjalli sérstaklega um það. Er svona lítið í fréttum að það sé reynt að "tína" allt upp?
Jóhann Elíasson, 20.5.2008 kl. 11:21
Hvað kemur okkur hér á Íslandi við hvernig þingmenn í Bandaríkjunum hugsa í sambandi við hvalveiðar. Ég er einn af mörgum Íslendingum sem eru á móti stríðsbrölti þeirra hingað og þangað um heimin, en ég tel nú ekki að kaninn hafi stórar áhyggjur af minni skoðun.
En ég segi það enn og aftur það á að veiða hvalinn bara til að halda jafnvægi í hafinu. Íslendingar ásamt öðrum þjóðum veiða ætið frá þeim.
Runólfur Jónatan Hauksson, 20.5.2008 kl. 12:13
Kannski þarf ekki að æsa sig út af nokkrum hrefnum, það er satt. En vitleysa er það samt að heimila hvalveiðar. Það skaðar nefnilega ímynd okkar sem ferðaland. Auk þess eru fyrirtækin sem skipuleggja og selja hvalaskoðunarferðir með réttu óhress því þetta tvennt fer alls ekki saman. Hér er verið að skaða atvinnugrein sem hefur vaxið og dafnað undanfarin ár, hér er að forna stærra hagsmuni fyrir minna.
Úrsúla Jünemann, 20.5.2008 kl. 12:29
Ursula eru hagsmunir hrefnuveiðimanna minni enn annara Íslendinga ertu þeirrar skoðunar að þeir eigi minni rétt hér en hvalaskoðunarmenn ????
Jón Aðalsteinn Jónsson, 20.5.2008 kl. 12:52
Sæl, Hver er munurinn á að veiða Hrefnur og Hreindýr.?
Hvað lengi hleypur Hreindýr eftir að það er skotið að meðaltali ?
Hvað þarf mörg skot til að fella það?
Hvað væri sagt ef Hreindýr væri sjávardýr og öslaði um allan sjó eftir að skotið var á það og skyldi eftir sig margar kílómetra blóðslóð í sjónum.
Felst munurinn ekki í því að önnur greinin er SPORT og þykir fínt hin er í atvinnuskini, í hafinu í kring um Ísland eru um 56 þúsund, dýr 56.000 dýr.
Þetta er sá liður sem umhverfismenn og Samfylkingin vilja ekki ræða.
Það eru Hvalaskoðunarmenn og Samfylkingin sem hrópa hæðst og gefa neikvæða mynd af Íslandi út á við og valda tjóni og skaða á Hagsmunum Íslands.
EKKI Hrefnuveiðimenn.
Kv Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 20.5.2008 kl. 14:21
Kill Em All
Ómar Ingi, 20.5.2008 kl. 17:10
geta menn ekki bara hætt að drepa öll dýr,það er varla nauðsynlegt, það er alltaf nóg af kjöti í búðinni,
"því borðar fólkið ekki kökur"
Anton Þór Harðarson, 20.5.2008 kl. 21:11
Þetta er eins og fíkill, reykingamaður sem er að reyna að hætta en getur ekki látið það vera að reykja eina og eina, helst í laumi.
Aumt, mjög aumt.
Algjör óþarfi.
Aumingja Íslendingar geta reynt að láta vorkenna sér eins og hrefnunum. Erum við ekki í útrýmingarhættu ef við fáum ekki að drepa hvali?
Það er alveg sama hvaða rök við komum með hérna. Heimurinn er ekki að hlusta á okkur, fátæklingana, aumingjana, peningagráðugu nautnaseggina.
Ef það er svona gott að drepa hvali, og svona rammíslenskt, gott málefni, gæti ekki til dæmis Björk (sem nýtur virðingar í poppheiminum) samið lag á ensku sem verður vinsælt um allan heim og inniheldur áróður með hvalveiðum?
Þá munu öll útlendingafíflin fatta hvað við íslendingar vorum klárir að kála hvölum.
Einar (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 21:41
http://www.joiragnars.blog.is/blog/joiragnars/entry/545691/
Jóhannes Ragnarsson, 20.5.2008 kl. 22:11
Úrsúla. Með því að veiða ekki hval erum við að skaða atvinnugrein, sem eru fiskveiðar og íslenska þjóðin hefur lifað á og gerir enn. Við erum að raska jafnvægi í hafinu og hvalastofnar éta margfalt af fiski á við það sem við getum nokkurn tímann veitt með allri okkar tækni. Þetta ímyndarkjaftæði er rugl. Kanar virðast ekki óttast að skaða ímynd sína með því að drepa fólk út um allan heim, ekki heldur Bretar og önnur herveldi. - Við eigum að lifa í sátt við náttúruna, sem við erum hluti af og passa upp að raska ekki jafnvæginu þar. Ef við ætlum að friða hvali þá er eins gott fyrir okur að hætta að hugsa um fiskveiðar. Varla býst ég við að ykkur hugnist að næra ykkur á álflýsum í stað fisks.
Haraldur Bjarnason, 21.5.2008 kl. 00:00
Við getum ekki látið ógnina stjórna því hvað við gerum eða gerum ekki. það að láta ógnina stjórna okkur er eins og lifa lífi fullu af stöðvunarskildum.
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 22.5.2008 kl. 20:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.