The times they are a-changin'

Gestur Vefritisins að þessu sinni er Bjarni Þór Pétursson. Í pistlinum sínum les hann orð í eyru '68 kynslóðarinnar, sem að hans mati er ekki bara dauð heldur stendur enn í vegi fyrir mikilvægum framförum. Kynslóðin sem kom eins og stormsveipur inn í líf þjóðarinnar og ætlaði sér að bylta samfélaginu í vinstri sinnað réttlátt samfélag er nú að ranka við sér á dánarbeðinu í jakkafötum frjálshyggjunnar á öfgunum hægra megin. Frjálsar ástir urðu frelsi í viðskiptum og uppi sitja komandi kynslóðir með fjárhagslega eyðniveiru. 

 

Já, ég vil lesa um sök '68 kynslóðarinnar!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Fjárhagsleg eyðniveira! Þetta er hugtak mánaðarins.

Úrsúla Jünemann, 25.11.2008 kl. 15:04

2 Smámynd: Davíð Löve.

Jú mikið rétt, en hvernig hafa stuttbuxna drengirnir hagað sér? Við höfum séð þá trana sér fram, hver um annann þveran, sem einhverskonar "sérfræðinga" í öllu sem þeir gaspra um. Eftirminnilegastur er fíflið sem var notaður af bönkunum til árása á íbúðalánasjóð. Eru allir búnir að gleyma þeim vitleysingi? Ofan í hvaða holu skreið hann? Mér sýnist þannig efniviður ekki geðslegur til valda.  

Davíð Löve., 26.11.2008 kl. 00:42

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Takk fyrir gott boð, en ég hef ákveðið að einbeita mér að vinum og ættingjum. Það er erfitt að rækta allt of stóran garð.kv.

Helga R. Einarsdóttir, 26.11.2008 kl. 16:49

4 Smámynd: Tori

Mér sýnist nú aðalleikarnir í hruninu vera nokkuð mikið yngri en 68 kynslóðin.

Tori, 26.11.2008 kl. 21:05

5 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Bjarni á líklega við þau sem eru við stjórnvölinn núna og eru um sextugt. Það er´68 kynslóðin. Þau hafa verið uppteknir við að byggja upp Ísland síðustu 40 árin og breyta því úr hafta og miðstýringaríki sem var í ætt við þau kommanísku sem Bjarni getur lesið um í sögubókum. Hinsvegar er ég viss um að þessi svonefnda ´68 kynslóð vill ekki skrifa uppá þennan víxil núna, það má kenna henni um að hafa ekki gætt að leik barnanna.

Ef Bjarni er að leyta að sökudólgum á hann að leita þeirra í ´88 kynslóðinni, þ.e. í börnum ´68 kynslóðarinnar. Hinsvegar má hann vera viss um að hans kynslóð tekur við völdum (sum þeirra kominn inná þing) og þá vona ég þau læri af því sem miður fór og bæti samfélagið enn betur.

Sigurbjörn Svavarsson, 26.11.2008 kl. 21:53

6 Smámynd: Tori

Þetta er vandamálið. Nákvæmlega hér endurspeglast bullið. Við erum að eiga við hrun þjóðfélagsins vegna þess að þingið svaf á vaktinni Hvernig nálgumst við framtíðina?

Tori, 28.11.2008 kl. 02:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband