Trúðu þeim er leita sannleikans, ekki þeim sem segjast hafa fundið hann

trailerkompasÍ grein dagsins fjallar Kamilla Guðmundsdóttir um fréttaþáttinn Kompás og veltir fyrir sér hvort leitin að sannleikanum eða einföld sölumennska ráði för við efnistök og framsetningu þáttanna. En hversu langt geta fréttamenn gengið í rannsóknarblaðamennsku sinni? Sumir myndu ætla að engin takmörk væru fyrir því hversu hnýsin þessi starfstétt megi vera svo framarlega sem siðareglum Blaðamannafélagsins og almennum lögum er fylgt. Það vakti því óneitanlega athygli á sínum tíma þegar dæmt var í máli manns sem var einn þeirra sem beit á agn Kompásmanna og freistaði þess að hitta barnunga stúlku í íbúð í Reykjavík.

Lesa meira


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Góð og þörf grein.  Það er ótrúlega auðvelt að gleyma hversu mikið maður hefur sé af villum og rangfærslum  í fjölmiðlum.  Nánast undantekningarlaust þegar maður þekkir til eru einhverjar villur og misskilningar, misalvarlegir þó.

Á vissan hátt má tengja þessu við fyrirsögnina "Trúðu þeim er leita sannleikans, ekki þeim sem segjast hafa fundið hann"  og færsluna um auglýsingar  ( Hvað verður rétt eftir 30 ár? ).

Og í sambandi við þessa spurningu um vitleysur í markaðssetningu, þá þykir mér augljóst að margt sem núna er sagt um umhverfisvernd,  og um lausnir, mun lita mjög skringilega út eftir 30 eða kannski bara eftir 10 árum. 

Rafmagnsbílar umhverfisvænir eða jafnvel sjálfbærir ?   Allt í lagi að aka bíla og fljúga eins mikið og maður vill,  ef maður  bara lætur planta nokkur tré fyrir sig ?  Nei, það sjáum við væntanlega mjög skýrt eftir 10-30 árum.  Til að setja hlutir í samhengi  varðandi sjálfbærni held ég að mjög gagnlegt sé að kíkja á útreikningum á vistfræðilegt fótspor okkar.   Samkvæmt þannig útreikningum þarf nokkur eintök af jörðinni til að standa undir neyslu  okkar á vesturlöndunum (ef allir jarðarbúar voru að eyða jafn miklu). 

Morten Lange, 24.9.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband