Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að raunveruleika

fartolvurDagbjört Hákonardóttir fjallar um skólagjöld og hvort að reglur um tölvukaup í Menntaskólanum séu í rauninni dulbúin skólagjöld.

,,Fólk hefur ekki ótakmarkað val þegar það kemur að menntaskólum. Forgangsröðun inntekinna nemenda eftir búsetu fyrirfinnst enn þann dag í dag, þótt hún hafi verið afnumin í orði. Það þarf því að kanna hvort skyldueign á fartölvum sé ekki dulbúið ólögmætt skólagjald, helst ekki seinna en í gær.”

Lesa »


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Bókvitið verður ekki í askana látið. 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 01:05

2 Smámynd: Ómar Ingi

Góð Dísa

Ómar Ingi, 26.8.2008 kl. 18:39

3 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

Laugheiður Gunnarsdóttir, 26.8.2008 kl. 20:51

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Menntaskólanemendurnir þurfa að punga út dálitla upphæð fyrir bækur, efnisgjald og hvað það nú heitir allt saman. Fartölvukaup er svolítið stór pakki og útilokar efnisminna fólk frá framhaldsnámi.

Úrsúla Jünemann, 26.8.2008 kl. 21:21

5 identicon

Látum oss nú sjá ... 1 fartölva = 1 Dolce & Gabbana skólataska.  Hvað skal til bragðs taka?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 22:50

6 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ég efast stórlega um menntafræðilegt gildi þess að kenna allt menntaskólanámsefni gegnum tölvur. Ekki myndi ég vilja reyna að fylgjast með því sem verið er að kenna meðan nágraninn hamrar á lyklaborðið djúpt sokkinnn í MSN samræður.

Hvað skólagjöldin varðar að þá munar mikið um þau fyrir þá sem eru í námi þar sem tekjur þeirra eru takmarkaðar á þeim tíma en munar svo mun minna um þá seinna á lífstíðinni. Þess vegna væri nær lægi að skólagjöldin greiddust úr sameiginlegum sjóðum gegnum tekjuskatt. Það er ekki þjóðhagslega hagkvæmt að skólakrakkar séu lengur á leiðinni í gegnum menntó vegna þess að þau eru að vinna fyrir skólagjöldum og bókakostnaði þar sem það kemur niður á starfslengd þeirra að skólagöngu lokinni. 

Héðinn Björnsson, 27.8.2008 kl. 18:32

7 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Til hamingju með það. Mikið framfara skref

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 30.8.2008 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband