Nauðgunarlausa verslunarmannahelgi fjölmiðlanna

rape2Verslunarmannahelgin þetta árið fór mjög vel fram, allavega að mati fjölmiðla Íslands sem hafa keppst við að flytja fréttir af nauðgunarlausri verslunarmannahelgi. Elín Ósk Helgadóttir bendir í grein dagsins á að þrátt fyrir að engin nauðgun um helgina hafi enn verið kærð gætu þær vel hafa átt sér stað og að fjölmiðlar þurfi að hvetja fórnarlömb til að gefa sig fram og leita réttar síns: „Umfjöllun fjölmiðla þar sem nauðgunarlausri helgi er hampað er bæði röng og ber vott um vankunnáttu. Það þarf ekki annað að skoða ársskýrslur Stígamóta til að gera sér grein fyrir því að nauðganir eru almennt ekki kærðar daginn eftir eða mánuðinn eftir og oft leita fórnalömb sér hjálpar mörgum árum seinna meðan önnur bera skömmina alla ævi án þess að leita sér aðstoðar.“

 

Auðvitað viltu lesa meira!


mbl.is Fíkniefnamál mun færri í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ösp

Flott grein hjá Elínu, þarft að vekja athygli á þessu.

kv.

Ösp, 17.8.2007 kl. 14:26

2 identicon

Vá ! Sumir eru aldrei ánægðir ! 

Maður hefði haldið að þessi þróun væri eitthvað til að gleðjast yfir.



Fransman (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 16:10

3 Smámynd: Ösp

Sæll Fransman.

Það að engin nauðgun hafi verið tilkynnt þetta árið eða engin nauðgun tilkynnt frá einhverri tiltekinni útihátið þýðir ekki að engin nauðgun hafi átt sér stað.

Eins og Elín segir þá er ekki hægt að vita svona rétt á eftir hversu margir kynferðisbrotaglæpir voru framdir um verslunarmannahelgina. Enda koma flestar konur ekki fram með að þeim hafi verið nauðgað fyrr en 5-10 árum eftir að atvikið átti sér stað. Þetta sýna íslenskar tölur úr íslenskum rannsóknum. Aðeins brotabrot af konum sem er nauðgað fara á neyðarmóttökuna eða tala við lögregluna rétt eftir að atburðurinn átti sér stað.

Því er ekki hægt að fullyrða að engin nauðgun hafi átt sér stað þetta árið. Það kemur ekki í ljós fyrr en eftir langan tíma ef það kemur einhvern tímann í ljós hvort að hægt sé í raun að gleðjast. Auðvitað væri það óskandi að nauðgunum væri að fækka :)

Ösp, 17.8.2007 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband