Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Amazon, fjarlægðin og skatturinn

Bækur frá AmazonAðgengi Íslendinga að erlendum bókum hefur gjörbreyst nú þegar óteljandi titlar standa til boða í netverslunum á borð við Amazon. Þórir Hrafn Gunnarsson rekur í grein dagsins ýmsar hindranir og kostnað sem íslenskir bókaunnendur rekast þó á við kaup á bókum á netinu: „Þegar 1000 króna bókin er loksins komin hendurnar á viðskiptavininum þá kostar hún 2215 krónur. Hún hefur sumsé meira en tvöfaldast í verði á leiðinni frá Bretlandi til Íslands.“

Já! Ég vil svo sannarlega lesa meira um Amazon, fræðimennskuna og skattpíninguna. 


Viðreisnarvon

Ráðhús Reykjavíkur„Ég er eflaust að bera í bakkafullan lækinn með því að taka borgarmálin áfram á dagskrá. Fólk er farið að sætta sig við orðinn hlut og ekki vil ég vaða uppi með leiðindi sem koma engum við. Íslenska minnið er svo skemmtilegt minni í íslenskri sögu.” Agnar Burgess ræðir í grein dagsins íslenskt lýðræði, úrslit Málsins og athyglisverð ummæli formanns ÍTR

Já! Ég vil lesa meira.


Viðhorfið þarf að breytast

reykjavikUmræðan um að gera vestari hluta Reykjavíkur að borg aftur hefur verið áberandi undanfarna daga einkum vegna samkeppninnar um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. Styrmir Goðason tekur í grein dagsins dæmi um tvær götur í gamla vesturbænum sem ekki fyrir svo löngu síðan myndaði samfélag þar sem íbúarnir bjuggu, unnu og sóttu þjónustu: „…. enda eru til þeir Reykvíkingar sem kjósa og þrá að búa í borgasamfélagi sem einkennist af samspili íbúða, verslana, þjónustu, góðra almenningssamgangna og almennum kumpánlegheitum sem slíkri dínamík fylgir.“

 

Já, ég vil lesa meira»


Er í tísku að hata femínista?

Fem2Á tilkynningatöflu í VR-II, húsi verkfræðideildar Háskóla Íslands, hangir eins og víðar á háskólasvæðinu bleikt veggspjald með skilaboðunum: „Er í tísku að hata femínista?“ Veggspjaldið starar sínum bleiku augum ögrandi framan í verkfræðinga framtíðar og vonast eftir að skapa þó ekki væri nema örlitla íhugun í frjóum heilabúum nemenda. Í grein dagsins fjallar Valgerður Halldórsdóttir um nýlega herferð Femínistafélags Háskóla Íslands og sorgleg viðbrögð við henni: ,,Í Lögbergi voru veggspjöldin komin niður innan tveggja daga og í öðrum húsum Háskólans hafa fjölmargar miður fallegar athugasemdir verið skrifuð eða límd á veggspjöldin. Í VR-II, þar sem ég stunda nám, var búið að eiga við meirihluti veggspjaldanna stuttu eftir að þau voru hengd upp. Krotað hefur verið á þau setningar eins og „Femínistafélagið aka feitar konur að væla,“ „Lessur“ og fleiri í þeim dúr.”

Já, er í tísku að hata femínista?


mbl.is Vantar alls staðar konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að pissa upp í vindinn

EvrópusambandiðSíðustu vikur hefur dregið til tíðinda í Evrópuumræðunni, en þó er eins og sumir andstæðingar Evrópusambandsaðildar þori ekki að taka umræðuna á málefnalegum grundvelli. Í grein dagsins fjallar Hrafn Stefánsson um ýmis ómálefnaheit sem fylgja umræðunni um Evrópusambandið, en í greininni segir meðal annars: ,,Mánudaginn 3. mars sendu ungir frjálslyndir frá sér ályktun þar sem þeir byrja á að vitna í 86. grein almennra hegningarlaga. Einhverra hluta vegna telja ungir frjálslyndir sig þurfa að byrja á því að taka það fram að landráðsmenn teljist þeir sem með svikum reyni að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð. Ekki kemur fram hver sé að reyna að svíkja Ísland inn í ESB, en það hlýtur að vera skoðun ungra frjálslyndra miðað við það samhengi sem þessi tilvitnun í hegningarlög er sett í.

Já! Ég vil lesa meira um ómálefnalegheit, landráðamenn og evrópuandstæðinga...


Einkavæðing: Frelsi eða ófrelsi?

Einkafangelsi nútímansÍ grein dagsins fjallar Pétur Ólafsson um einkavæðingu og hætturnar sem fylgja því að alhæfa um tilfallandi kosti hennar eða galla. Segir meðal annars í greininni: ,,En, því miður, er einkavæðing ekki alltaf svarið. Blind trú hægri manna á hana getur því verið mjög hættuleg almannahagsmunum. Oft heyrir maður sem rök fyrir einkavæðingu að fólk fari betur með eigið fé en annarra og þar af leiðandi ættu einkaaðilar að eiga og reka sem flestar gamlar ríkisstofnanir. En hvar á að hætta? Hversu langt á að ganga? Á að einkavæða Háskóla, fjarskiptastofnanir, bókasöfn, banka, flugvelli, brýr, göng, vegi, sjúkrahús, fangelsi, slökkvilið og lögreglu?”

Lesa »


Kenýa

Kenýa,,Átakaalda hefur riðið yfir Kenýa í kjölfar kosninganna og skipunar Mwai Kibaki í embætti forseta þann 27. desember síðastliðinn. Átök hafa átt sér stað víðsvegar um landið. Borist hafa frásagnir af ofbeldisfullri hegðun lögreglu gagnvart mótmælendum, m.a. hafa borist fregnir af því að mótmælendur hafi verið skotnir og drepnir af lögreglu” segir meðal annars í grein Kára Hólmars Ragnarssonar um ástandið í Kenýa í dag og þau mannréttindabrot sem framin eru þar.

Ég vil lesa meira um ástandið í Kenýa.


Framtíð Reykjavíkur

GeysirÍ grein dagsins fjallar Gró Einarsdóttir um Vatnsmýrarsvæðið og þá möguleika sem felast í uppbyggingu þar. Segir meðal annars í greininni: ,,Þrátt fyrir fáránleika þess að hafa flugvöll i hjarta borgarinnar er hægt að sjá ótrúleg tækifæri falin í þessu 150 hektara svæði. Það er einstakt í Evrópu að eiga möguleika á því að byggja upp miðborgarkjarna frá grunni. Við getum tekið til okkar það besta frá öðrum borgum Evrópu í bland við nýjar hugmyndir sem eiga eftir að gefa Reykjavik allt annan svip.”

Já! Ég vil lesa um framtíð Reykjavíkur.


« Fyrri síða

Um höfund

Vefritid
Vefritstíðindi flytja fregnir af Vefritinu. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál. Hér verða birtir bútar úr greinum, þær er hægt að lesa í heild sinni á Vefritid.is.

Nota bene

Móðurfélagið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband